Work

Áhrif ofbeldis á andlega líðan kvenna á meðgöngu

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Study Protocol
Abstract: Þessi rannsóknaráætlun er lokaverkefni til B.S.-prófs í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri. Tilgangur fyrirhugaðrar rannsóknar er að kanna áhrif ofbeldis á meðgöngutíma á andlega líðan þungaðra kvenna. \nÍ fyrirhugaðri rannsókn munu rannsakendur styðjast við megindlega rannsóknaraðferð. Rannsóknin verður lýsandi samanburðarrannsókn sem ber saman mun á milli hópa. Leitað verður svara við því hvernig andleg líðan kvenna á meðgöngu er hjá þunguðum konum sem leita til mæðraverndar á höfuðborgarsvæðinu. Kannað verður hvort munur sé á milli þessara kvenna eftir því hvort þær hafa orðið fyrir ofbeldi í nánu sambandi á meðgöngutímanum, orðið fyrir annars konar ofbeldi á þessari meðgöngu eða hafa ekki orðið fyrir ofbeldi á meðgöngutímanum. Edinborgar-þunglyndiskvarðinn verður notaður til að kanna mun á andlegri líðan þessara kvenna. \nHöfundar vonast til að í framhaldi af fyrirhugaðri rannsókn verði hægt að skoða sérstaklega þessa þrjá hópa og þá hvort auka eða bæta þurfi þjónustu til einhverra af þessum hópum. Ef tilgáta höfunda reynist rétt og þær konur sem verða fyrir ofbeldi á meðgöngu líður verr andlega, opnar það vonandi augu heilbrigðisstarfsmanna fyrir mikilvægi þess að vera vakandi fyrir vísbendingum um ofbeldi og umfram allt að þora að spyrja um ofbeldi.
Source: Skemman
Authors: Thelma Ýr Guðjónsdóttir, Kolbrún Rós Björgvinsdóttir, Jóhanna Rannveig Þórhallsdóttir, Stefanía Þórðardóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979794888
Cites: 38
Cited by:
Related to: 10