Work

Andleg heilsa og matartengd hegðun : „Let food be thy medicine and medicine be thy food.“ (Hippocrates)

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Sálfræði tengd þarmaflórunni er nýleg viðbót við fræðigreinina. Rannsókn (Clapp. o.fl., 2017) sýndi að tengsl væru á milli bólgu í meltingarvegi og geðraskana á borð við kvíða og þunglyndi. Rannsóknir hafa einnig skoðað samband streitu og fæðuvals hjá fólki. Rannsókn Zellner og félaga (2006) sýndi að þeir sem upplifðu streitu væru líklegri að sækja í sykraðan mat heldur en þeir sem að upplifðu ekki einkenni streitu. Gerð var safngreining sem skoðaði fylgni á milli mataræðis og þunglyndis og sýndu niðurstöður Lai o.fl. (2014) að þeir sem borðuðu holla fæðu væru ólíklegri að þjást af þunglyndi en aðrir. Rannsóknir erlendis hafa í auknum mæli litið til þessara tengsla en afar fáar rannsóknir hafa verið gerðar hérlendis. Bendir margt til þess að þarmaflóra og mataræði hafi samverkandi áhrif við einkenni og algengi geðraskana og andlegrar líðanar. Markmið okkar rannsóknar var að kanna hvort að tengsl væru á milli andlegrar heilsu og matartengdrar hegðunar Íslendinga. Öflun gagna fór þannig fram að lagður var fyrir spurningarlisti sem samanstóð af frumsömdum spurningum rannsakenda sem og staðlaðra sjálfsmatskvarða, PHQ-9, PSS-4 og GAD-7. Spurt var sérstaklega út í neyslu valinna fæðutegunda. Þátttakendur komu úr almennu þýði 18 ára og eldri og var spurningalistinn lagður fyrir á samfélagsmiðli. Niðurstöður sýndu að engin tengsl var að finna milli kyns og neyslu fæðutegundanna og skors þátttakenda á PSS-4 streitukvarðans. Konur reyndust skora hærra en karlar á kvíðakvarðann GAD-7 og þunglyndiskvarðann PHQ-9 og átti það við í öllum tilfellum. Þegar tengsl fæðutegunda og kyns gagnvart skori á PHQ-9 og GAD-7 voru skoðuð reyndust marktæk frumhrif af kyni í flestum tilvikum auk þess að marktæk frumhrif voru af ákveðnum fæðutegundum í mörgum tilfellum. Með þessari rannsókn höfum við sýnt fram á að marktæk tengsl eru milli fæðuvals og hvernig einstaklingar meta andlega líðan sína. Niðurstaða okkar er á margan hátt samhljóða niðurstöðum erlendra rannsókna sem benda í auknum mæli til þess að mataræði hafi bein áhrif á andlega líðan og geðraskanir. Frekari rannsókna er þörf enda gæti dýpri þekking og aukin vitneskja fært fagaðilum, og þeim sem þjást af slæmri andlegri líðan eða geðröskunum, aukin tækifæri til að meðhöndla og takast á við þessa þætti \n \nLykilhugtök: Þunglyndi, Kvíði, Streita, Matartengd hegðun, Þarmaflóra, Geðheilsa, Næring.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979921137
Cites: 57
Cited by:
Related to: 10