Analyzing Social Behavior in Icelandic Blogging Communities. Sentiment Analysis and Related Tasks with IceBERT
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er ætlunin að þróa grunnlínulíkön fyrir níu verkefni sem falla undir lyndisgreiningu með fyrirfram þjálfuðu IceBERT líkani. Líkönin eru þjálfuð á broti úr Ice and Fire gagnasafninu, en það var byggt upp með því að skrapa saman pósta og samsvarandi athugasemdir frá Moggablogginu, íslensku bloggsvæði sem hefur verið virkt frá árinu 2006. Ítarleg lýsing á merkingu athugasemda gagnasafnsins er sett fram og gerð er grein fyrir leiðbeiningum og viðmiðum við gagnamerkingu hvers verkefnis. Mat á líkönum gefur mismunandi niðurstöður eftir eðli verkefnanna sem og dreifingu þjálfunargagna þeirra. Verkefnin sem náðu meðal árangri eða betur voru: Einföld lyndisgreining, greining á særandi orðbragði, hvatningagreining, tilfinningagreining og greining á uppbyggilegri endurgjöf. Þessum sex líkönum var síðan beitt á gagnasafn með 35.000 athugasemdum frá Moggablogginu og úrtök þeirra notuð til að skoða félags- og hegðunarfræðilega virkni bloggvettvangsins. Niðurstöðurnar benda til þess að staðalímyndir kynjanna séu til staðar í bloggsamfélaginu og benda einnig til mögulegra tengsla milli aukningar á neikvæðri orðræðu á vefnum og efnahagshrunsins 2008. Þessi rannsókn varpar ljósi á þörfina fyrir lyndisgreiningu, ekki aðeins sem tæki fyrir rafræna ritstjórn/ritskoðun á netinu heldur einnig aðferð við gagnasöfnun til félags- og hegðunarfræðilegra rannsókna.
Source: Skemman
Author: Atli Snær Ásmundsson 1992-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Artificial Intelligence
Field: Computer Science
Domain: Physical Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6979934969
