Work

Að deila móðurhlutverki með heilbrigðisstarfsfólki: Tengslamyndun móður og fyrirbura

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Að eignast fyrirbura er krefjandi verkefni og tekur bæði andlega og líkamlega á móður. Myndun tengsla getur reynst torveld og spila þar heilsufarslegir kvillar barns og sálræn líðan móður stóran þátt. Fyrirburi þarfnast oft flókinnar meðferðar heilbrigðisstarfsfólks innan nýburagjörgæslu og gæti líf hans verið í húfi. Umfjöllunarefni þessarar fræðilegu samantektar er tengslamyndun móður og fyrirbura. Fullnægjandi tengslamyndun móður og barns getur stuðlað að góðum félagsþroska og seiglu barns í framtíð þess. \nHeimilda var aflað í gegnum gagnabankana PubMed og Google Scholar. Einnig voru bækur teknar í útláni frá Bókasafni Kópavogs og greinar fundnar í heimildaskrám þeirra greina sem sóttar voru í gagnabanka. Reynt var eftir bestu getu að styðjast við heimildir ekki eldri en 5 ára en þó var notast við greinar sem voru eldri í undantekningartilfellum. \nTilgangur höfunda með þessum skrifum er að afla upplýsinga um hvaða þættir geta gert tengslamyndun móður og fyrirbura torvelda og hvernig megi styrkja hana og efla. Leitast var við að kanna hvernig heilbrigðisstarfsfólk getur hvatt til jákvæðrar tengslamyndunar innan nýburagjörgæslu. Niðurstöður leiddu í ljós að erfiðleika tengslamyndunar er hægt að skoða út frá tveimur sjónarhornum, annars vegar frá móður og hins vegar frá barni. Sektarkennd er einkennandi meðal mæðra fyrirbura þar sem þær kenna sjálfum sér um að hafa ekki náð fullri meðgöngulengd. Fyrirburi getur haft heilsufarskvilla sem þarfnast meðferðar á nýburagjörgæslu og getur umhverfið þar truflað bæði móður og barn. Heilbrigðisstarfsfólk á nýburagjörgæslum þarf að vera vakandi fyrir því að bæta umhverfissaðstæður í hag tengslamyndunar og taka ekki fram fyrir hendur móður af óþörfu. \nFullnægjandi tengslamyndun móður og barns er ekki sjálfgefin og þá sérstaklega ef barn er fætt fyrir tímann. Með markvissri áherslu á þróun tengsla er hægt að bæta upp fyrir þær hindranir sem geta átt sér stað varðandi tengsl móður og fyrirbura hennar í kjölfar áfalls sem fylgir fyrirburafæðingu.
Source: Skemman
Authors: Elfa Lind Einarsdóttir, Ilmur Björg Einarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6980146616
Cites: 36
Cited by:
Related to: 10