„Að fleyta kerlingar“ : áskoranir og hindranir í að koma til móts við nemendur með sérþarfir í náttúrufræðikennslu
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar er að gera grein fyrir reynslu náttúrufræðikennara af því að koma til móts við nemendur með sérþarfir og að skoða hvers konar stuðning náttúrufræðikennarar óska eftir til að koma til móts við alla nemendur í náttúrufræðinámi þeirra. \nFræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar er hugmyndafræði skóla án aðgreiningar sem byggir á því að allir nemendur geti stundað nám á sínum forsendum. Einnig felst fræðilegur bakgrunnur í kenningum og rannsóknum sem styðja náttúrufræðinám þar sem lögð er áhersla á að skilja fyrirbæri náttúrufræðinnar. \nTil að ná þessu markmiði var notast við eigindlega rannsókn sem byggði á hálfopnum viðtölum við níu náttúrufræðikennara á mið- og unglingastigi. Þeir voru valdir með því að óska eftir viðtölum á lokaðri Facebook síðu náttúrufræðikennara og með því að senda tölvupóst á náttúrufræðikennara sem rannsakandi þekkti. Tilgangur rannsóknarinnar er að auka skilning á því hvernig kennarar koma til móts við nemendur með sérþarfir í náttúrufræðikennslu í grunnskólum og hvaða stuðning þeir þurfa til þess. \nNiðurstöður benda til þess að náttúrufræði sé vel til þess fallin að koma til móts við ólíkar þarfir nemenda. Þegar náttúrufræðikennarar beita fjölbreyttum kennsluaðferðum og vinna með verklegar æfingar, upplýsingatækni og útikennslu tekst þeim iðulega að gera alla nemendur virka á jafningjagrunni. Kennarar notast við einstaklingsnámskrá, stjörnumerkta einkunn, fjölbreytt og aðlöguð verkefnaskil, fjölbreytt námsmat og áhugasvið nemenda til að koma til móts við nemendur með sérþarfir. Kennarar töldu sig þó þarfnast meiri stuðnings fyrir nemendur með sérþarfir, svo sem aðlagað námsefni, samstarf milli heimilis og skóla og innan skólanna og meira fjármagn, til að geta sinnt náttúrufræðinámi án aðgreiningar. \nKennarar eru stöðugt að þróa hugmyndir og leiðir til að koma til móts við ólíkar þarfir og getu nemenda í náttúrufræðikennslu, en náttúrufræði er stundum aukagrein fyrir nemendur með sérþarfir. Það ætti að horfa meira til styrkleika barna með sérþarfir en á greiningu þeirra og það sem þau geta ekki. Í náttúrufræðikennslu líkt og öðrum námsgreinum er tækifæri til að koma til móts við nemendur með sérþarfir og byggja kennsluna á styrkleikum þeirra og áhuga. Rannsókn þessi gefur skólasamfélaginu tækifæri til að læra af og þróa áfram það sem vel er gert í náttúrufræðikennslu og hvað mætti bæta.
Source: Skemman
Author: Rakel Dögg Óskarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: special needs students, science education, science teachers, barriers to inclusion, inclusive education, teacher support, primary and lower secondary education, teacher professional development, student self-concept, student self-efficacy, student self-regulation, student self-determination, student self-advocacy
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6980150346
