Work

Börn lesa fyrir hunda : geta hundar haft áhrif á lestrargetu og áhuga barna á lestri?

Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Áhugi á að gera rannsókn á lestrarþjálfun með hundum kviknaði eftir að ég hafði, ásamt hópi af áhugasömu fólki, skipulagt verkefnið Lesið fyrir hund á Íslandi. Um er að ræða lestrarverkefni að bandarískri fyrirmynd sem nefnist R.E.A.D. (Reading Education Assistance Dogs). Aðferðin byggist meðal annars á því að barnið fái svigrúm til að lesa á eigin hraða og í samræmi við lestrarfærni sína án þess að vera leiðrétt eða truflað við lesturinn. Hundar gegna lykilhlutverki og eru ekki eingöngu vingjarnlegir og öðruvísi áheyrendur, heldur er athygli barnsins beint að hlustun og skilningi hundsins þegar kemur að lesskilningi og endursögn, sem eru þeir þættir sem áhersla er lögð á í verkefninu. \nMarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvort þátttaka grunnskólabarna í verkefninu Lesið fyrir hund hefði áhrif á lestraráhuga, lesfimi og lesskilning þeirra og var framkvæmd í einum skóla á höfðuðborgarsvæðinu. Þátttakendur í rannsókninni voru fjögur börn í 3. bekk. Við framkvæmd rannsóknarinnar voru bæði notaðar megindlegar og eigindlegar aðferðir. Lestrarpróf voru lögð fyrir börnin til að mæla lesfimi og lesskilning og einnig var lagt mat á aðra þætti með matsblöðum sem eigendur hundanna fylltu út. Eigindlegri aðferðafræði var beitt til að kanna lestraráhuga og voru tekin viðtöl við börn, kennara og foreldra barnanna. Meðrannsakendur voru sérkennari skólans og eigendur hundanna sem hér eru kallaðir lestrarliðar. Gagna var aflað með mælingum, viðtölum, skriflegum skráningum og myndbandsupptökum. \nHelstu niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að lestraráhugi jókst hjá öllum börnunum þegar þau voru að lesa fyrir hundinn og viðhorf til lestrar varð jákvæðara. Þeim þótti eftirsóknarvert að lesa fyrir hund og sýndu meiri áhuga á lestri í lestrarstundum með hundum en á heimalestri eða lestri í skólanum. Þá hafði nærvera við hund verulega jákvæð áhrif á hegðun nemenda, sérstaklega nemanda með ADHD. Í lesskilningi voru mælanlegar framfarir hjá tveimur börnum af fjórum en framfarir í lesfimi voru ekki merkjanlegar. Niðurstöðurnar sýna að verkefnið Lesið fyrir hund hefur lítil áhrif á letrarfærni svo sem lesfimi. Ávinningurinn og árangurinn virðist helst fólginn í þeirri ánægju sem börnin upplifa þegar þau lesa fyrir hundinn. Lestur texta verður merkingarbærari fyrir barnið sem um leið eykur áhuga þess á lestri. Niðurstöður benda einnig til þess að farsælt sé að nota hunda í lestrarþjálfun barna og gefa þær tilefni til frekari rannsókna á því sviði.
Source: Skemman
Author: Margrét Sigurðardóttir 1965
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6980294174
Cites: 54
Cited by:
Related to: 10