Work

Characteristics and phenotypes of Excessive Daytime Sleepiness: Studies on the general population and sleep apnea patients

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Íþyngjandi dagsyfja er einkenni sem hefur flókið samband við svefn, lífstíl, \nandlega- og líkamlega heilsu einstaklinga. Kæfisvefn er algengasti sjúkdómurinn sem \nveldur dagsyfju. Epworth Syfjuskali (ESS) og er stuttur spurningalisti sem metur líkur á \nað sofna/dotta og er ESS sú aðferð sem oftast er notuð til að mæla dagsyfju. Veik \nfylgni er á milli mælinga með ESS og þess hversu oft eða ákaft einstaklingur upplifir \nsyfju. Syfja virðist því ekki vera einsleitt ástand sem unnt er að mæla einungis með \n“líkum á að dotta”, heldur flókið og margþætt einkenni, sem samanstendur af mörgum \nsyfju-tengdum þáttum. Það skortir betri skilning á bæði orsökum og afleiðingum \nmismunandi þátta huglægrar syfju. Slíkur skilningur gæti stuðlað að þróun á \nheildstæðari og nákvæmari aðferða við mat á íþyngjandi dagsyfju. \nMarkmið: Að kanna algengi, sérkenni og fylgni tveggja skilgreininga íþyngjandi \ndagsyfju bæði meðal almennings og hjá kæfisvefnssjúklingum fyrir og eftir meðferð. \nAð auki voru skoðuð tengsl margháttaðra mælibreyta í svefni við dagsyfju einkennin. \nEfniviður og aðferðir: Tveir þættir íþyngjandi dagsyfju voru metnir; ESS stig (>10 stig \nskilgreint sem “líklegir til að dotta”) og upplifun dagsyfju (≥3 sinnum í viku skilgreint \nsem að “upplifa dagsyfju”). Þátttakendum var síðan skipt í fjóra syfjuhópa m.t.t. \nsvipgerðar: “ekki syfjaðir”, “bara líklegir að dotta”, “upplifa bara dagsyfju” og “bæði \nlíklegir að dotta og upplifa dagsyfju”. Í grein I voru syfjuhóparnir skoðaðir meðal \nslembiúrtaks úr almennu þýði einstaklinga 40 ára og eldri sem tóku þátt í \nfaraldsfræðilegri rannsókn á algengi og eðli langvinnrar lungnateppu (e. Burden of \nObstructive Lung Disease (BOLD)). Syfjuhóparnir voru bornir saman m.t.t. \nlýðfræðilegra- og lífsstílsþátta, almennrar heilsu, svefntengdra einkenna, líkum á \nkæfisvefni og lífsgæða. Í grein II voru syfjuhóparnir kannaðar á meðal sjúklinga með \nmiðlungs-til-alvarlegan kæfisvefn í Íslenska svefnrannsóknarhópnum (e. Icelandic Sleep \nApnea Cohort (ISAC)). Algengi og sérkenni syfjuhópanna voru metin við greiningu og \naftur 2 árum eftir að meðferð með svefnöndunarvél hófst. Við eftirfylgdina var \nmeðferðarheldni þeirra metin ásamt breytingu á syfju-tengdum einkennum, svefnleysi \nog lífsgæðum. Þeir sem upplifðu viðvarandi íþyngjandi dagsyfju (voru “líklegir til að \ndotta” og/eða „upplifa dagsyfju“ við greiningu og eftirfylgd) voru bornir saman við þá \nsem fengu bata. Í grein III voru niðurstöður úr grein II sannreyndar með svipuðum \naðferðum og í grein I og II í alþjóðlegum hópi kæfisvefnssjúklinga (e. Sleep Apnea \nGlobal Interdisciplinary Consortium (SAGIC)) með miðlungs-til-alvarlegan kæfisvefn. Að \nlokum, í grein IV, voru svefnbreytur mældar með svefnmælingu (e. polysomnography \n(PSG)) og bornar saman á milli milli syfjuhópanna meðal sjúklinga með vægan-tilalvarlegan kæfisvefn í SAGIC. \niv \nNiðurstöður: Í almenna þýðinu (n=1338, 53% karlar) voru 70.2% „ekki syfjaðir“, 6.7% \n„bara líklegir til að dotta“, 16.7% „upplifðu bara dagsyfju” og 6.4% voru “bæði líklegir \ntil að dotta og upplifðu dagsyfju”. Þeir sem voru „bæði líklegir til að dotta og upplifðu \ndagsyfju” lýstu oftar hrotum, nætursvita og öndunarstoppum í svefni. Þeir sem „upplifði \nbara dagsyfju“ var oftar með háþrýsting, hjarta- og æðasjúkdóma, sykursýki og einkenni \nsvefnleysis. Einstaklingar í syfjuhópunum tveimur sem “upplifðu dagsyfju” mátu \nlífsgæði sín marktækt verri en aðrir. Þeir sem voru „bara líklegir til að dotta“ voru \nlíklegri til að lýsa einkennum kæfisvefns (hrotur og öndunarstopp í svefni) en voru að \nöðru leyti eins og þeir sem voru „ekki syfjaðir“. Á meðal kæfisvefnssjúklinga í ISAC \n(n=810, 81% karlar) voru 17.7% „ekki syfjaðir“, 7.7% „bara líklegir til að dotta“, 24.7% \n“upplifðu bara dagsyfju” og 49.9% voru “bæði líklegir til að dotta og upplifðu \ndagsyfju”. Svipað og hjá einstaklingum í almennu þýði syfjuhóparnir tveir sem \n“upplifðu dagsyfju” oftar með einkenni svefnleysis og mátu lífsgæði sín verri en \neinstaklingar öðrum syfjuhópum. Þeir sem “upplifðu bara dagsyfju“ voru líklegri til að \nvera kvöldtýpur. Meðferðarheldni á notkun svefnöndunarvélar var svipuð milli \nsyfjuhópanna. Þeir sjúklingar sem voru “líklegir til að dotta” (með/án að „upplifa \ndagsyfju) sýndu meiri ávinning af meðferð en aðrir. Við 2ja ára eftirfylgni höfðu 42.3% \nviðvarandi syfju þrátt fyrir meðferð. Þeir voru með vægari kæfisvefn við greiningu og \nvið eftirfylgd höfðu þeir oftar viðvarandi einkenni kæfisvefns og kvartanir um svefnleysi \nborið saman við þá sem hafði batnað. Meðal kæfisvefnssjúklinga í SAGIC hópnum \n(n=2352, 77% karlar) var algengi þess að hafa ESS stig >10 svipað og í ISAC hópnum \n(57% í SAGIC og 52% í ISAC) en tíðni þess að upplifa dagsyfju ≥3 sinnum á viku var \nmun lægra (31,3% í SAGIC og 74,7% í ISAC). Á heildina litið studdu niðurstöðurnar í \nSAGIC hópnum niðurstöður okkar í ISAC. Meðal sjúklinga með vægan-til-alvarlegan \nkæfisvefn í SAGIC (n= 2097, 68% karlar) höfðu syfjuhóparnir tveir sem voru “líklegir til \nað dotta” fleiri skipti á klukkustund með öndunarhléum eða minnkaðri öndun (e. apneahypopnea index), alvarlegri súrefnisskort mælt með stuðli súrefnismettunarfalls (e. \noxygen-desaturation index), lágmarks- og meðalsúrefnismettun og tíma varið <90% í \nsúrefnismettun og vörðu styttri tíma vakandi en þeir sem voru „ekki syfjaðir“ og \n„upplifðu bara dagsyfju“. Á heildina litið var sambandið milli svefnbreytanna á PSG og \nsyfjuhópanna veikt. Ekki reyndist marktækur munur milli syfjuhópanna á svefnstigum, \nsvefndýpt, tíðni og styrkleika uppvaknana, tíma að sofnun, vökutíma eftir sofnun og \nhreyfingu útlima í svefni. \nÁlyktanir: Íþyngjandi dagsyfja er margþætt einkenni. Íþyngjandi dagsyfja metin út frá \nlíkum að dotta annars vegar og hins vegar að upplifa dagsyfju tengjast heilsu, svefni, \nkæfisvefni og lífsgæðum á mismunandi hátt meðal einstaklinga í almennu þýði og \neinnig meðal íslenskra kæfisvefnssjúklinga og stórs hóps sjúklinga frá fjölda landa. \nEingöngu voru væg tengsl milli margháttaðra mælibreyta í svefni við dagsyfju einkenna.
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6980543189
Cites: 236
Cited by:
Related to: 10