Work

Dagdvöl léttir lífið. Viðhorf skjólstæðinga til dagdvalar í Múlabæ

Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Múlabær er dagdvöl fyrir aldraða. Í þessari ritgerð verður farið yfir megindlega rannsókn sem framkvæmd var með það meginmarkmið, að rannsaka viðhorf skjólstæðinga Múlabæjar til þjónustunnar sem boðið er upp á þar. Fór höfundur af stað í rannsóknina með þrjár rannsóknarspurningar. Þær voru, hvert er viðhorf skjólstæðinga til þjónustunnar sem veitt er í Múlabæ, hefur dvölin í Múlabæ dregið úr félagslegri einangrun hjá skjólstæðingum og hvaða formlegu sem og óformlegu þjónustu eru skjólstæðingar að nýta sér utan Múlabæjar. Þátttakendur í rannsókninni voru allir skjólstæðingar Múlabæjar sem höfðu bæði möguleika og áhuga á þátttöku. \nNiðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að þátttakendur voru almennt ánægðir með dagdvölina og þá þjónustu sem boðið er upp á í Múlabæ, þó svo það væru nokkrir hlutir sem þátttakendum fannst að betur mættu fara. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknarinnar fann rúmlega helmingur þátttakenda fyrir félagslegri einangrun áður en þeir byrjuðu að mæta í Múlabæ. Af þeim, sem fundu fyrir félagslegri einangrun, sögðu flestir að dregið hefði úr félagslegri einangrun eftir að þeir fóru að mæta í Múlabæ. Með tilliti til formlegrar og óformlegrar þjónustu fengu margir þátttakendur óformlega þjónustu frá tengslaneti sínu í formi aðstoðar við athafnir daglegs lífs. Einnig nýtti hluti þátttakenda sér formlega þjónustu eins og heimahjúkrun, heimaþjónustu, heimsendan mat og aðra þjónustu. \nLykilorð: Aldraðir, félagsráðgjöf, dagdvalir, þjónusta við aldraða.
Source: Skemman
Author: Hrafnhildur Björg Gunnlaugsdóttir 1983
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6980835357
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10