Design of Experiments Optimization of N-acyl and N-alkyl Chitosan Synthesis and Application Investigations
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Kítósan er náttúruleg fjölliða með víðtækt notagildi. Hún er örveruhemjandi, óeitruð og hefur lífsamrýmanleika auk þess að vera niðurbrjótanleg. Þessir eiginleikar gera fjölliðuna áhugaverða til notkunar í lyfja- og læknisfræðilegum tilgangi. Rannsóknir á kítósani snúa að þróun afleiða með betri leysni sem og aðra betrumbætta eiginleika. Doktorsverkefnið fjallar um að þróa skilvirkar, hagkvæmar og uppskalanlegar aðferðir til að framleiða N-alkýl og N-asýl kítósan afleiður, með svokölluðum "Design of Experiments" (DoE) tilraunahönnnaraðferðum, og hámarka setni (e. degree of substitution; DS) fjölliðunnar ásamt því að betrumbæta líffræðilega eiginleika hennar með tilliti til notkunar í lyfja- og læknisfræði. Fyrir efnasmíðar á N,N,N-trímetýlkítósan (TMC) voru framkvæmdar alls átta DOE tilraunir, annað hvort runubundnar, þrepaskiptar og fullþáttaðar hannanir. Lykilbreytur eins og alkýlerandi efni, basar, mólhlutföll, leysar, hitastig, aðferðir við bætingu basa, sem og hvarftímar voru hámarkaðar. Efnasmíð í einu skrefi fyrir TMC var þróuð með hárri setni af trímetýlhópum (e. Degree of trimethylation; DTM) án O-metýleringar. Til að bregðast við seigju vanda í hvörfum var notast við nýjan basa, N,N-díísóprópýletýlamín (DIPEA), með þrepaskiptri viðbætingu. Þessi nýja aðferð áætluð fyrir notkun á stærri iðnaðarskala gaf háar heimtur á DTM án O-metýleringar. Fjöljónanlegar fléttu nanóagnir(NPs) voru myndaðar á grunni TCM og kondríótín súlfats. In vitro prófanir á lífsamrýmandleika og frumudrepandi eituráhrifum voru framkvæmdar á mennskum þekjufrumum og krabbameinsfrumulínum með uppruna úr legi. Rannsökuð voru áhrif DTM, mólþyngdar og myndun NPs. DoE greining fyrir röð áður framkvæmdra tilrauna á efnasmíðaferlum fyrir samtengdar kítósan-hýdroxýsinnamínsýru fjölliður var gerð. Borið var kennsl á lykilþætti ferlanna og líffræðilegir eiginleikar samtengdra fjölliða, þar á meðal andoxunar- og örveruhemjandi áhrif, voru rannsakaðir. Samböndin sýndu aukin andoxunaráhrif í samræmi við aukna setni þegar notast var við ferrulínsýru og kaffínsýru sethópa. Í samanburði minnkuðu örveruhemjandi áhrifin á þeim stofnum sem prófað var gegn með aukinni setni samanborið við óbreytt kítósan. Einnig var framkvæmd efnasmíð á N-betaín kítósani með HATU miðluðu kúplunarhvarfi þar sem einfalt efnasmíðaferli var þróað með hárri setni í einu skrefi, án aðkomu verndarhópa. Fullþátta (e. Full factorial) hönnun var notuð til að rannsaka mólhlutföll HATU og þess basa sem notast var við í hvarfinu. Í verkefninu var þróuð efnasmíð í einu skrefi fyrir TMC með allt að 72% DTM, sértæk efnasmíð á kítósan-hýdroxýsinnamínfjölliðum með allt að 60% DS sem og hagkvæm aðferð til efnasmíða á N-betaín kítósani með allt að 100% DS. DoE tilraunahönnun reyndist mjög árangursrík þar sem notast var við kerfisbundna leið til hámörkunar á smíði kítósan-afleiða með betrumbætta eiginleika fyrir notkun í lyfja- og læknisfræði.
Source: Opin vísindi (Opin vísindi)
Author: Nagy, Vivien
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Pharmaceutical Science
Domain: Life Sciences
Open Access status: green
Funder: Háskóli Íslands
OpenAlex ID: W6981035030
