Ebola representations in media and other public domains in Iceland
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Ebólufaraldurinn í Vestur-Afríku hlaut töluverða umfjöllun í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum á Íslandi. Þrátt fyrir að litla Ísland sé staðsett langt frá upptökum faraldursins, var hann títt umræddur á veraldarvefnum. Á Landspítalanum voru gerðar veigamiklar varúðarráðstafanir ef ske kynni að einstaklingur smitaður af Ebólu kæmi til landsins. Í þessari meistararitgerð voru textar og myndir sem tengdust atburðunum í Vestur-Afríku greindir með aðferðum orðræðugreiningar í þeim tilgangi að bera kennsl á helstu áhrifavalda á Íslandi sem stýrðu orðræðunni á meðan faraldurinn geisaði á árunum 2013-2016. Niðurstöðurnar benda til þess að fjögur mismunandi þemu eða orðrómar hafi einkennt orðræðuna. Þessi þemu voru ótti, reiði, skynsemisraddir og samsæriskenningar. Helstu áhrifavaldarnir voru fólkið sem tjáðu skoðanir sínar í athugasemdakerfum netmiðlanna, fjölmiðlafólkið sem skrifaði fréttir um atburðina í Vestur-Afríku, heilbrigðisstarfsfólkið sem gaf viðtöl sem og ýmsir einstaklingar sem tóku þátt í umræðum á umræðuvefjunum bland.is, vaktin.is og malefnin.com, sem eru vel þekktir á Íslandi. Niðurstöðurnar eru ræddar í samhengi við sambærilegar rannsóknir erlendis frá og út frá kenningum um Austurlandafræði, framandleika annarra og kerfislægt ofbeldi. Niðurstöður þessarar rannsóknar gætu nýst heilbrigðisyfirvöldum og öðrum í undirbúningi fyrir aðrar heilbrigðisógnir í framtíðinni.
Source: Skemman
Author: Margrét Hanna Magnúsdóttir 1984
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Cultural Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981283909
