Eitruð karlmennska : er stoltið eitrið í eitraðri karlmennsku?
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Ráðandi karlmennska er hugtak sem vísar til þess að karlar og það sem sé karlmannlegt á hverjum tíma sé viðmiðið, þannig að ef einstaklingur ætlar sér að ná langt í samfélaginu þarf viðkomandi að fylgja ráðandi karlmennskuhugmyndum. Eitruð karlmennska er hugtak sem á margan hátt er skylt ráðandi karlmennsku, en það sem greinir á milli er að eitruð karlmennska aðhyllist hamlandi og neikvæða eiginleika í fari karlmanna, sem dæmi má nefna öfgafullt keppnisskap, tillitsleysi í garð annarra, yfirvald yfir öðrum, og andúð gegn öllu því sem tengist kvenleika. Félagsmótun drengja hvetur þá til þess að koma sér upp sem karlmannlegustum viðhorfum, og eru þeim viðhorfum framfylgt með svokallaðir karlmennsku löggæslu. Þetta getur haft neikvæð andleg áhrif á drengi, sem síðar meir reyna að bæla þau niður með ofbeldi eða óhóflegri drykku til að forðast skömmina sem þessu fylgir. Tilgangur rannsóknarirnnar er að fá betri mynd á hugtakið, og hvaða þættir eru að verki á bak við birtingarmyndir eitraðrar karlmennsku. Rannsóknarspurning rannsóknarinnar er eftirfarandi: Er stoltið eitrið í eitraðri karlmennsku? Fræðigreinar og rannsóknir voru skoðaðar, en að auki var einnig spurningalisti lagður fyrir karlmenn sem leiddi í ljós að hugmyndirnar og viðmiðin gætu verið að leysast upp, og samfélagið að þokast í rétta átt hvað varðar hugmyndir um hvernig alvöru karlmenn eiga að vera og haga sér. Vinnan er þó ekki búin, og þarf umræðan að halda áfram sínu striki svo hugmyndafræðin og viðmiðin breytist til hins betra.
Source: Skemman
Author: Egill Bjarni Friðjónsson
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981370420
