„Einkalífið er líka rosalega mikið að spila inn í, ekki bara starfið" : reynsla grunnskólastjórnenda af vinnutengdri streitu grunnskólakennara.
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum árum hefur umræða um álag og streitu aukist í samfélaginu og bent hefur verið á að langvarandi streita geti haft neikvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu einstaklinga. Margir íslenskir grunnskólakennarar finna fyrir vinnutengdri streitu. Fjöldi rannsókna hefur beinst að streituvöldum í grunnskólakennarastarfinu og þeim þáttum sem geta verið verndandi gegn álagi og streitu. Niðurstöður rannsókna sýna að ýmislegt í starfsumhverfi grunnskólakennara getur haft áhrif á upplifun þeirra á streitu og álagi og að þar spili grunnskólastjórnendur veigamikið hlutverk vegna ábyrgðar sinnar og áhrifa. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á upplifun íslenskra grunnskólastjórnenda af vinnutengdri streitu grunnskólakennara, hvernig hún birtist þeim og hvernig þeir annars vegar vinna gegn henni og hins vegar bregðast við henni. Upplifun grunnskólastjórnenda á vinnutengdri streitu grunnskólakennara hefur lítið verið rannsökuð en tilgangur þessarar rannsóknar er að dýpka skilning og auka þekkingu á málefninu út frá sjónarhorni grunnskólastjórnenda. \nNíu grunnskólastjórnendur tóku þátt í rannsókninni, sjö konur og tveir karlar. Notuð var eigindleg aðferðafræði og hálf-opin viðtöl tekin við þátttakendur. \nRannsóknarniðurstöður benda til þess að grunnskólastjórnendur séu meðvitaðir um að grunnskólakennarastarfið sé streituvaldandi og að þar spili umfang starfsins og vinnutími stóran þátt. Grunnskólastjórnendur nýta meðal annars styðjandi stjórnunarhætti og teymisvinnu til að fyrirbyggja streitu og álag hjá grunnskólakennurum og bregðast við streitueinkennum til dæmis með skipulagsbreytingum og með því að bjóða sértækan stuðning. Rannsóknarniðurstöðurnar benda til þess að vinnutengd streita grunnskólakennara sé tilkomin vegna samverkandi áhrifa vinnu og einkalífs og að persónulegt líf hvers og eins grunnskólakennara sé mikill áhrifavaldur þegar grunnskólakennarar eru að fást við streitueinkenni og kulnun. Viðbrögð grunnskólastjórnenda byggðust fyrst og fremst á reynslu þeirra og hyggjuviti og huga þarf betur að stuðningi við grunnskólastjórnendur og mótun verkferla í flóknum mannauðsmálum.
Source: Skemman
Author: Lilja Friðriksdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981443330
