Work

Er einmanaleiki og félagsleg einangrun ógnvaldur við lífsgæði aldraðra? Þjónusta og úrræði.

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Í ritgerðinni er fjallað um birtingarmyndir einmanaleika og félagslegrar einangrunar á aldraða og áhrif þessara þátta á lífsgæði þeirra. Markmið ritgerðarinnar er að skoða áhrif einmanaleika og félagslegrar einangrunar á heilsufar og lífsgæði aldraðra. Mikil þróun hefur átt sér stað í samfélaginu öllu og þarf þjónusta, viðhorf og aðlögun fyrir aldraða að vera í takt við þarfir þessa ört stækkandi hóps samfélagsins. Ávinningur samfélagsins líkt og ávinningur þeirra sem aldraðir er ótvíræður. Um er að ræða einstaklinga sem ber að fá viðeigandi þjónustu því þeir hafa í gegnum æviskeið sitt byggt upp íslenskt samfélag. Hlutverk aldraðra breytist og þróast út frá æviskeiðinu og stöðu þeirra í samfélaginu. Þar með verður oft áherslubreyting á því hvernig aldraðir verja tíma sínum. Þó svo fólk eldist vill það áfram sinna hlutverkum sínum og hafa skyldur í daglegu lífi til að viðhalda venjum sínum. Í ritgerðinni verða skoðaðar íslenskar og erlendar rannsóknir sem ná til viðfangsefnisins með því markmiði að horfa á ólíkar aðstæður og hvaða leiðir eru notaðar til að draga úr áhrifum einmanaleika og félagslegrar einangrunar á daglegt líf aldraðra einstaklinga. Niðurstöður rannsókna sýna fram á að með því að sinna daglegri virkni til að viðhalda heilsu, vera í tengslum við ættingja og vini og sinna sjálfboðaliðastörfum og tómstundum á eigin forsendum eykur lífsgæði fólks. Sjálfsákvörðunarréttur aldraðra á að vera virtur í takt við íslensk lög og reglugerðir og þverfaglega teymisvinnu m.a. frá félagsráðgjöfum, en ekki síst með megininntak heimsmarkmiðanna að leiðarljósi leiðir í átt að bættum lífsgæðum fyrir aldraða jafnt sem aðra samfélagshópa. \nLykilorð: aldraðir, einmanaleiki, félagsleg einangrun, réttindi, þjónusta.
Source: Skemman
Author: Ingunn Þorsteinsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981581455
Cites: 49
Cited by:
Related to: 10