Work

Faraldsfræðileg rannsókn á algengi og sjúkdómsgangi starfrænna meltingarfærakvilla á Íslandi

Year: 2011
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Langvinn og endurtekin einkenni frá meltingarvegi sem ekki er hægt að finna neinar vefrænar eða lífefnafræðilegar skýringar á eru nefnd starfræn einkenni frá meltingarvegi (SEM). SEM eru algeng og allt að helmingur tíma sérfræðinga í meltingarfærasjúkdómum fer í að sinna þeim. SEM skiptast í þrjá meginflokka: meltu¬ónot (functional dyspepsia), heilkennið iðraólgu (irritable bowel syndrome) og brjóstsviða. \nMegin tilgangur rannsóknarinnar var að kanna faraldsfræði SEM hjá Íslendingum og er aðal áhersla lögð á iðraólgu (IBS), meltuónot (dyspepsiu) og brjóstsviða og þróun þeirra á tíu ára tímabili. Einungis ein önnur rannsókn hefur skoðað SEM með sambærilegri aðferðafræði og var hún framkvæmd í Olmsted County í Minnesota í Bandaríkunum (OC). Annar tilgangur rannsóknarinnar var i) að bera saman mismunandi greiningaraðferðir (Manning, Rome II, Rome III og self-report) fyrir iðraólgu á 10 ára tímabili, ii) að kanna iðraólgu og tíðaverki hjá konum og breytingar á iðraólgu við tíðahvörf, iii) að kanna þekkingu og notkun lækna á skilmerkjum til að greina iðraólgu og meðferð annars vegar og þekkingu og upplifun einstaklinga með iðraólgu á sjúkdómnum. \nAðferðafræði \nÁrið 1996 var spurningalisti sendur til 2000 manna slembiúrtaks íslendinga á aldrinum 18-75 ára sem endurspeglaði íslensku þjóðina hvað varðar kyn, búsetu og aldursdreifingu. Spurningalistinn var sendur aftur út tíu árum seinna (2006) til sama úrtaks. Spurningalistinn var byggður á “the Bowel Disease Questionnarie” sem var þýddur og staðfærður yfir á íslensku. Annar spurningalisti var sendur til 191 læknis og innihélt hann spurningar varðandi skilmerki, greiningu og meðferð á iðraólgu. Að auki var hringt í 94 einstaklinga úr fyrri rannsókninni sem uppfyltu skilmerki iðraólgu og þeir spurðir út í þekkingu þeirra á iðraólgu og greiningu og meðferð á iðraólgu. \nNiðurstöður: \nLýðfræði: Árið 1996 var svarhlutfallið 1336/2000 (66.8%). Alls var 1180/1336 einstaklingum sendur nýr spurningalisti (156 náðist ekki í eða voru látnir), þar af svöruðu 799 (67.7%) árið 2006. Meðalaldur svarenda var 42 ár 1996 og 53 ár 2006. Fleiri konur svöruðu spurningalistanum árið 2006 (57.8%) heldur en þær sem svöruðu 1996. Svarhlutfallið var hærra hjá eldri einstaklingum en þeim yngri. \nTíðni: Hjá einstaklingum með SEM var tíðni einkenna stöðug milli áranna 1996 og 2006: 16.9% og 17.2% á iðraólgu en 4.8% og 6.1% á meltuónotum. Upphaf einkenna í síðari könnuninni var hærri í OC rannsókninni á iðraólgu og tíðum kviðverkjum (frequent abdominal pain). Brotthvarf einkenna var svipað hjá iðraólgu og meltuónotum í báðum rannsóknum. Tíðni umskipta (transition) var mismunandi eftir undirflokkum og milli rannsókna (Ísland/OC). Sama hlutfall einstaklinga var með sömu einkenni í fyrri og síðari rannsókn. Fleiri einstaklingar voru með engin einkenni á Íslandi (52% vs. 39%;p<0.01)) og voru með önnur einkenni í síðari rannsókninni (38% vs. 23%; p<0.05)). Algengi iðraólgu var mismunandi eftir skilmerkjum; Manning sýndi hæstu tíðnina (32%) og Rome II þá lægstu (5%). Yngri einstaklingar og konur voru líklegri til að fá greininguna iðraólga. Tíðni var stöðug á tíu ára tímabili samkvæmt öllum skilmerkjum iðraólgu, að undanskildum Rome III skilmerkjunum. Tilfærsla var á öllum undirflokkum iðraólgu og sterk tengsl á milli iðraólgu, meltuónota og brjóstsviða. \nTíðaverkir: Alls voru 254/331 (76.7%) konur með tíðaverki af þeim konum sem ekki voru komnar á tíðahvörf árið 1996 og 74.1% árið 2006. Alls voru 105/254 (41.5%) og 39/152 (25.7%) kvenna með tíðaverki og einnig með iðraólgu samkvæmt skilmerkjum Manning og Rome III árið 2006, og 48.6% og 10.5% 1996. Árið 2006 voru 46/152 (30.3%) kvenna með slæma eða mjög slæma tíðaverki. Fleiri konur 8/31 (26.5%) voru með mjög slæma kviðverki eftir tíðahvörf en fyrir tíðahvörf (10.7%). \nMeltuónot: Meltuónot voru greind hjá 13.9% einstaklinga árið 1996 (11.3% karla, 15.8% kvenna; p=NS) og 16.7% árið 2006 (12.3% karla, 20.2% kvenna; p<0.01). Skilmerki undirflokka meltuónota (UM) sýndu hærri tíðni en hefðbundin skilmerki meltuónota. Tíðni einstaklinga með meltuónot í UM var lág. Það voru marktæk tengsl milli meltuónota og brjóstsviða (p<0.001) og iðraólgu (p<0.05). Hátt hlutfall þeirra einstaklinga sem nýta sér heilbrigðisþjónustu hafa meltuónot. \nBrjóstsviði: Tíðni brjóstsviða (að minnsta kosti einu sinni í mánuði) á síðast liðnu ári var 42.8% (1996) og 44.2% (2006), með sterk tengsl milli þeirra sem höfðu brjóstsviða bæði árin. Brjóstsviði síðast liðna viku (árið 2006) var greindur hjá 20.8 % einstaklinga. Það voru marktæk tengsl á milli brjóstsviða, meltuónota og iðraólgu. Einstaklingar með líkamsþyngdarstuðull sem var lægri eða hærri en meðal líkamsþyngsarstuðul eru líklegri til að hafa brjóstsviða. Einstaklingar tilgreindu brjóstsviða sem þeir telja mjög oft orsakast af fæðu eða drykkjum í 20.0% tilfella. Brjóstsviði hafði mikil áhrif á daglegt líf einstaklinga, svefn og lífsgæði. \nRannsókn meðal lækna og einstaklinga með iðraólgu: Alls svöruðu 80/191 (41.9%) lækna spruningalistanum. Alls reyndust 13 einstaklinga vera greindir mánaðarlega með iðraólgu af sérfræðingum í meltingarsjúkdómum (SM) og 2.5 einstaklinga af sérfræðingum í heilsugæslulækningum (SH). Allir SM þekktu mismunandi skilmerki iðraólgu og 46/70 (65.7%) SH. Einungis 18/80 (22.5%) allra lækna notaði sértæk skilmerki til að greina iðraólgu. Af þeim einstaklingum með iðraólgu (skv. spurningalista) sem undirgengust símakönnunina sögðu 59/94 (62.8%) að þeir höfðu upplifað iðraólgu að eigin mati. Tveir af hverjum fimm einstaklingum voru með þekkingu á iðraólgu og höfðu leitað til læknis vegna einkenna iðraólgu. Helmingur þeirra fékk greininguna iðraólga. Alls voru 13% ánægðir með þá meðferð sem þeir fengu vegna iðraólgu og 43% sögðu að iðraólgan hefði áhrif á daglegt líf. \nUmræða og ályktun \nStarfræn einkenni í meltingarvegi eru algeng á Íslandi eins og í öðrum löndum. Tíðnin er hærri meðal yngri einstaklinga og algengari meðal kvenna. Mikill munur er á milli greiningaskilmerkja hvað varðar tíðni SEM. Tíðni einkenna SEM var stöðug á tíu ára tímabili en tilfærsla einkenna var mikil. Munur var á milli einkenna og tíðni umskipta milli Íslands og OC rannsóknarinnar. Fleiri einstaklingar höfðu engin einkenni á Íslandi og það voru meiri tilbrigði hjá einstaklingum sem voru með önnur einkenni eftir tíu ár. Niðurstöður rannsóknarinnar draga fram vandamálið við að skilgreina og greina iðraólgu. Ekkert eitt ákveðið skilmerki virðist duga. Niðurstöður rannsóknarinnar benda því til þess að iðraólga sé ekki einn ákveðinn sjúkdómur heldur klasi einkenna sem flýtur í tíma á milli flokka iðraólgu, meltuónota og brjóstsviða.
Source: Skemman
Author: Linda Björk Ólafsdóttir 1966
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981798110
Cites: 223
Cited by:
Related to: 10