Fjölskyldumiðuð atferlismeðferð fyrir of feit börn: Árangur styttrar og einfaldaðrar meðferðar við klínískar aðstæður
Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Markmiðið með þessari rannsókn var að kanna árangur af stuttri, einfaldaðri meðferð fyrir of feit börn, sem hafði sömu uppbyggingu og fjölskyldumiðuð atferlismeðferð (family-based behavioural treatment: FBBT), við klínískar aðstæður. \nTilgáta rannsakenda var að einfaldað og stytt úrræði gæti dregið úr brottfalli og verið vænlegur kostur fyrir klínískar aðstæður að því gefnu að árangur væri sambærilegur við þann árangur sem náðst hefur á jafn löngum tíma í fyrri rannsóknum. Þar sem erlendar rannsóknir hafa sýnt að matarhegðun barna með offitu er frábrugðin matarhegðun barna í almennu þýði þá var annað markmið með rannsókninni að skoða hvort að svipaðar niðurstöður kæmu í ljós hérlendis. \nÞátttakendur voru 19 börn, á aldrinum 8-12 ára, og annað foreldri þeirra sem tóku þátt í göngudeildarmeðferð við Barnaspítala Hringsins. Átján fjölskyldur luku meðferð og bauðst 9 og 14 vikna eftirfylgd. Hæð og þyngd barna og foreldra var mæld við upphaf meðferðar, lok og við 9 og 14 vikna eftirfylgd. Við upphaf meðferðar voru gildi í blóði mæld hjá börnum og sálfræðileg mælitæki lögð fyrir: foreldramatslisti sem metur matarhegðun barna (CEBQ), sjálfsmatslisti sem metur þunglyndiseinkenni barna (CDI), sjálfsmatslisti sem metur kvíðaeinkenni barna (MASC), foreldramatslisti um styrk og vanda barna (SDQ), kennaramatslistinn Mat á skólafærni og sjálfsmatslistar fyrir foreldra sem meta einkenni þunglyndis (BDI-II) og kvíða og þunglyndis (DASS). Við lok meðferðar og við 9 vikna eftirfylgd voru CDI, MASC og BDI-II lagðir fyrir aftur. \nNiðurstöður voru þær að staðlaður líkamsþyngdarstuðull (LÞS-SFS) barna lækkaði marktækt frá upphafi til loka meðferðar (meðaltalsmunur= –0,24 staðalfráviksstig, sf=0,13, t(17) = 7,71, p < 0,001) og árangri var viðhaldið við 9 og 14 vikna eftirfylgd. Við meðferð dró úr kvíðaeinkennum barna (t(13) = 5,186, p < 0,001) en engin breyting varð á einkennum þunglyndis, hvorki meðal barna né foreldra. Á CEBQ skora börn í meðferðarhópnum að jafnaði lægra á matvendni, tilfinningalegu lystarleysi, seinlæti í að borða, löngun til að drekka og svörun við mettun. Börn í meðferðarhópnum skora hinsvegar að jafnaði hærra á svörun við mat. Enginn munur er á hópunum á þáttunum ánægja við að borða og tilfinningalegt ofát. Líkamsþyngdarstuðull (LÞS) foreldra lækkaði marktækt frá upphafi til loka meðferðar (meðaltalsmunur= –0,71, sf=0,43, t(17) = 7,07, p < 0,001) og árangri var viðhaldið við 9 og 14 vikna eftirfylgd. \nSamkvæmt niðurstöðum bar stutt, einfölduð meðferð fyrir of feit börn sem hafði sömu uppbyggingu og FBBT, árangur í klínísku úrtaki íslenskra barna. Meðferðin hafði áhrif á LÞS-SFS barna, LÞS foreldra og kvíðaeinkenni barna. Matarhegðun barna í meðferðarhóp reyndist ólík matarhegðun barna í almennu þýði. Brottfall úr meðferð var lítið.
Source: Skemman
Author: Huld Óskarsdóttir 1975
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981854854
