Fordómar í garð samkynhneigðra og áfengis- og vímuefnaneytenda á Íslandi á tímabilinu 1990 til 2017: Hefur stjórnanleiki áhrif á fordóma?
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Samkvæmt eignunarkenningum og stimplunarkenningum eru fordómar meiri í garð þeirra sem eru taldir hafa stjórn á aðstæðum sínum. Þrátt fyrir að áfengis- og vímuefnaröskun er skilgreind sem geðsjúkdómur af alþjóðlegum greiningarviðmiðum, þá virðist almenningur trúa því að áfengis- og vímuefnaneytendur beri ábyrgð á heilsufari sínu. Hins vegar, eru sífellt fleiri orðnir meðvitaðir um að samkynhneigð sé ekki val. Markmið eftirfarandi rannsóknar er að kanna, með hliðsjón af eignunarkenningum Weiner og Crandall og kenningu Goffman um stimplun, hvort fordómar í garð samkynhneigðra og áfengis- og vímuefnaneytenda hafi breyst á Íslandi á tímabilinu 1990 til 2017. Gögn frá Evrópsku lífsgildakönnuninni eru notuð, og er könnunin frá árunum 1990, 1999, 2008 og 2017. Tilgáturnar eru eftirfarandi: 1) fordómar í garð vímuefnaneytenda hafa aukist, 2) fordómar í garð ofdrykkjumanna hafa aukist, 3) fordómar í garð samkynhneigðra hafa minnkað og 4) fordómar eru meiri í garð allra hópanna meðal þeirra sem telja sig hafa stjórn á eigin örlögum. Helstu niðurstöður sýna að fordómar í garð samkynhneigðra hafa minnkað í gegnum árin. Fordómar í garð fíkniefnaneytenda hafa hins vegar aukist á umræddu tímabili. Einnig hafa fordómar í garð ofdrykkjumanna aukist. Ekki fékkst stuðningur við fjórðu tilgátuna, svo ekki er hægt að álykta um mun á fordómum eftir því hvort fólk telur sig hafa stjórn á eigin lífi eða ekki. Áhugavert væri að rannsaka betur hvað liggur að baki þessum auknu fordómum í garð áfengis- og vímuefnaneytanda.
Source: Skemman
Authors: Selma Ómarsdóttir, Hilmar Benedikt Hilmarsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981855234
