Work

Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni (PCOS) : Leyndur heilsufarskvilli meðal kvenna

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, eða PCOS er algengur en leyndur heilsufarskvilli sem leggst eingöngu á konur. Heilkennið er ólæknandi og veldur truflunum á innkirtla-, efnaskipta- og æxlunarfæra starfsemi líkama kvenna. Þessar truflanir geta valdið konum margvíslegum einkennum eins og blöðrum á eggjastokkum, óreglu á tíðahring og hækkuðum styrk andrógena í blóði. Einnig getur PCOS haft í för með sér ýmsa fylgikvilla, m.a. offitu, aukið insúlínviðnám, andlega vanlíðan og ófrjósemi. Þrátt fyrir algengi og alvarleika PCOS virðist ekki vera til mikið fræðilegt efni um heilkennið á íslensku og umræðan um það lítil í samfélaginu. Höfundum þykir þar af leiðandi mikilvægt að varpa ljósi á PCOS og því sem heilkenninu fylgir. \nTilgangur: Tilgangurinn er að beina sjónum að fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, helstu einkennum þess og fylgikvillum. Þá verða sérstaklega skoðuð tengsl PCOS við frjósemi, ásamt áhrifum þess á andlega líðan og lífsgæði þeirra kvenna sem greindar eru með heilkennið. \nAðferð: Um er að ræða fræðilega samantekt til B.S.- prófs í hjúkrunarfræði við Háskóla Íslands. Í upphafi voru rannsóknarspurningar mótaðar með aðstoð PICOT hjálpartækisins, sem síðan var leitast eftir að svara við gerð verkefnisins. Leit að heimildum fór fram í gagnagrunnunum PubMed, Cinahl og Google Scholar. Þar var leitað að rannsóknum sem beindu sjónum sínum að fjölblöðrueggjastokka¬heilkenni, tengslum þess við frjósemi og áhrifum þess á andlega líðan og lífsgæði. \nNiðurstöður: Niðurstöður gefa til kynna að PCOS getur haft neikvæð áhrif á frjósemi kvenna, þ.e. það getur tekið þær lengri tíma að verða ófrískar ásamt því að vera líklegri til að þurfa að notfæra sér frjósemismeðferðir vegna þeirra hormónatruflana sem heilkennið getur valdið. Einnig eiga þær í meiri hættu á að þróa með sér meðgöngukvilla þegar þær ganga með barn. Konur greindar með PCOS upplifa í mörgum tilfellum andlega vanlíðan og skert lífsgæði tengt heilkenninu, m.a. vegna einkenna þess og fylgikvilla. \nÁlyktun: Fjölblöðrueggjastokkaheilkennið er leyndur og flókinn heilsufarskvilli meðal kvenna. Mikilvægt er fyrir heilbrigðisstarfsfólk að þekkja vel til heilkennisins svo það geti veitt konum greindum með PCOS viðeigandi meðferð og stuðning. \nLykilorð: Fjölblöðrueggjastokkaheilkenni, frjósemi, ófrjósemi, meðganga, andleg líðan, meðferð og greining.
Source: Skemman
Authors: Hafrún Hlín Sigfúsdóttir, Helga Rún Björgvinsdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981857534
Cites: 71
Cited by:
Related to: 10