Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Vistvæn ferðaþjónusta hefur farið ört vaxandi í samanburði við aðra markaðsþætti innan ferðaþjónustunnar á síðastliðnum árum. Um leið og vistvæn ferðaþjónusta hefur áhrif á þróun samfélaga skapar hún staðbundin störf sem sjálfbær atvinnugrein. Frumkvöðlastarf er mikilvægt fyrir vöxt og þróun ferðaþjónustunnar og getur haft í för með sér að áfangastaðir nái að dafna. Meginmarkmið þessarar rannsóknar er að skilgreina hvers konar áfangastaður Sólheimar í Grímsnesi er ásamt því hvernig frumkvöðlastarf Sesselju Sigmundsdóttur hefur haft áhrif á starfsemi þeirra í gegnum tíðina. Til þess að komast að þessu var notast við eigindlega rannsóknaraðferð sem fólst í því að gera viðtalsrannsókn. Viðtalsrannsóknin byggir á fjórum viðtölum við einstaklinga á aldrinum 40 - 72 ára sem allir höfðu tengingu við Sólheima. Niðurstöður leiddu í ljós að Sólheimar í Grímsnesi er samfélags með sjálfbærni að leiðarljósi. Um er að ræða eitt elsta umhverfissamfélag landsins. Sjálfbærni hefur verið ríkjandi á svæðinu frá upphafi og þar hefur ákveðin þekking og reynsla skapast í kjölfar þeirra umhverfisvænu ákvarðana sem samfélagið tekur. Ferðaþjónustan á Sólheimum hefur færst í aukana frá því að starfsemin hófst. Með tilkomu gistiheimila sem reist voru á svæðinu eiga ferðamenn möguleika á því að dvelja á svæðinu og upplifa fjölbreytileikann sem þar er að finna. Niðurstöður benda einnig til þess að Sesselja og starfsemi hennar sem frumkvöðull hafi haft töluverð áhrif á uppbyggingu, þróun og starfsemi staðarins í dag. Álykta má að starfsemi hennar hafi verið byggð á lífsstílsfrumkvöðlastarfi vegna þess að hún hafði lífsstíl sinn og draumsýn að leiðarljósi. \nLykilorð: Sólheimar í Grímsnesi, ferðaþjónusta, vistvæn ferðaþjónusta, frumkvöðull, lífsstílsfrumkvöðlastarfsemi
Source: Skemman
Author: Sóley Karen Sigurjónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981886594
