Work

Fræðileg samantekt á orsökum og afleiðingum einmanaleika hjá unglingum

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Systematic Review
Abstract: Bakgrunnur: Einmanaleiki hefur farið vaxandi meðal íslenskra unglinga síðastliðin ár. Einmanaleiki er sársaukafull tilfinning sem kemur fram þegar misræmi er á milli ríkjandi félagslegra tengsla einstaklings og hugmynda hans um félagsleg tengsl. Margir þættir geta orsakað tilfinninguna um einmanaleika meðal unglinga, ásamt því að afleiðingar hans geta verið margvíslegar og haft slæm áhrif á sálræna og líkamlega heilsu þeirra. \nMarkmið: Í þessari ritgerð er leitast við að greina og samþætta niðurstöður rannsókna sem fjalla um einmanaleika meðal unglinga og greina þannig orsakir þeirra og afleiðingar. Tilgangur ritgerðarinnar er að varpa ljósi á þá þætti sem orsakað geta einmanaleika meðal unglinga og afleiðingarnar sem einmanaleikinn hefur í för með sér fyrir unglingana. \nAðferðir: Notast var við aðferðafræði fræðilegrar samantektar á kerfisbundinn hátt. Kerfisbundin heimildaleit var framkvæmd í gagnagrunni PubMed. \nNiðurstöður: Orsakavaldar einmanaleika meðal unglinga geta verið mismunandi, svo sem kvíði, félagsfælni, streita, lágt sjálfsmat og þunglyndiseinkenni. Þegar margir þessara þátta koma saman eykur það enn meira á tilfinninguna um einmanaleika og getur þar af leiðandi leitt til mikils eða langvarandi einmanaleika. Ef unglingar upplifa mikinn eða langvarandi einmanaleika geta afleiðingarnar verið skaðlegar fyrir þá. Þunglyndiseinkenni, lakara heilsufar, lágt sjálfsmat, kvíði og óöryggi eru meðal þeirra afleiðinga sem einmanaleiki getur leitt til. \nÁlyktun: Mikilvægt er fyrir hjúkrunarfræðinga á framhaldsskólastigi að þekkja orsakir einmanaleika svo hægt sé að fyrirbyggja hann, ásamt því að geta auðkennt þá unglinga sem glíma við einmanaleika. Einnig er mikilvægt að þekkja þær afleiðingar sem geta komið fram í kjölfarið svo hægt sé að styðja unglinginn. \n \nLykilorð: Einmanaleiki, unglingar, orsakir, afleiðingar
Source: Skemman
Author: Edda Sigríður Sigfinnsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981890024
Cites: 29
Cited by:
Related to: 10