Forprófun á nýju málþroskaprófi fyrir 6–10 ára: Flokkun orða, mál- og hljóðkerfisvitund og málnotkun
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Inngangur: Á Íslandi er lítið til af málþroskaprófum fyrir börn á grunnskólaaldri og þau sem eru notuð í dag eru ýmist þýdd og staðfærð, eða meta aðeins afmarkaða þætti málfærni barna. Markmið þessarar rannsóknar var að forprófa nýtt málþroskapróf, Málfærni íslenskumælandi grunnskólabarna (MÍSL-G), sem ætlað er börnum á aldrinum 6–10 ára. Í þessum hluta rannsóknarinnar voru þrjú af 11 undirprófum málþroskaprófsins skoðuð, þ.e. Tjáning: Flokkun orða, Skilningur/tjáning: Mál- og hljóðkerfisvitund og skráningarlisti um félagslega málnotkun, sem samanstóð af spurningum sem lagðar voru fyrir foreldra. Próffræðilegir eiginleikar þessara undirprófa voru metnir svo halda megi áfram að þróa prófið og búa það undir stöðlun. \nAðferð: Málþroskaprófið var lagt fyrir 106 börn í tveimur grunnskólum í Reykjavík og þremur grunnskólum á landsbyggðinni. Börnunum var skipt niður á þrjú aldursbil, 6;0–6;5 ára, 7;10–8;4 ára og 9;6–9;11 ára. Til þess að uppfylla skilyrði um þátttöku máttu börnin í úrtakinu ekki hafa greinst með þroskaraskanir og þurftu að vera eintyngd og eiga íslensku að móðurmáli. Foreldrar voru beðnir um að svara spurningalista um ýmsar bakgrunnsbreytur og málnotkun barna sinna. Tölfræðiforritið R var notað við úrvinnslu gagna. Undirprófið Skilningur/tjáning: Mál- og hljóðkerfisvitund skiptist í fjóra hluta og er hver hluti metinn sérstaklega. Skráningarlistinn um félagslega málnotkun innihélt tvo hluta og miðuðust útreikningar við skráningarlistann í heild sinni, sem og fyrir hvorn hluta fyrir sig. Reiknuð voru meðaltöl og staðalvillur fyrir undirprófin og MÍSL-G í heild. Atriðum undirprófanna var þyngdarraðað og áreiðanleikagreining gerð ásamt því að fylgni prófatriða við undirpróf var könnuð. Fylgni var einnig skoðuð á milli allra undirprófa og að lokum var heildarskor undirprófa skoðað eftir aldri og kyni. \nNiðurstöður: Marktækur munur var á meðaltölum milli yngsta aldurshópsins og miðhópsins á undirprófinu Tjáning: Flokkun orða og á öllum hlutum undirprófsins um Mál- og hljóðkerfisvitund. Hins vegar mældist aðeins marktækur munur á milli miðhópsins og eldri hópsins á tveimur hlutum undirprófsins um Mál- og hljóðkerfisvitund, þ.e. á þeim hlutum sem meta orðhlutaeyðingu og hljóðeyðingu. Ekki reyndist marktækur munur á milli miðhóps og elsta hóps á undirprófunum Flokkun orða né heldur á þeim hlutum Mál- og hljóðkerfisvitundar sem meta samsett orð og greiningu hljóða. Ekki var marktækur munur á meðtölum milli aldurshópa á skráningarlista um félagslega málnotkun. Marktæk fylgni var á milli allra undirprófa MÍSL-G, fyrir utan listann sem metur málnotkun, en hann hafði veika jákvæða fylgni aðeins við undirprófin Flokkun orða og þá hluta Mál- og hljóðkerfisvitundar sem meta samsett orð og hljóðeyðingu. Enn fremur reyndist vera veik en marktæk fylgni milli málnotkunarlistans og undirprófanna Skilningur: Orð og Tjáning: Orð. Ekki mældist marktækur munur á milli kynja í neinu undirprófi málþroskaprófsins né í prófinu í heild. \nUmræður: Niðurstöður virðast benda til þess að prófatriði undirprófanna Tjáning: Flokkun orða og Skilningur/tjáning: Mál- og hljóðkerfisvitund séu nægilega aðgreinandi á milli tveggja yngri aldurshópanna. Hins vegar þarf að endurskoða atriði undirprófins Tjáning: Flokkun orða og tveggja hluta undirprófsins um Mál- og hljóðkerfisvitund (samsett orð og greining hljóða) fyrir tvö eldri aldursbilin. Með því að bæta við þyngri atriðum eru líkur á að þessi tilteknu undirpróf nái að mæla viðunandi aldursbundna stígandi frá yngsta til elsta aldurshóps. Ómarktæk eða veik marktæk fylgni við skráningarlistann um félagslega málnotkun þvert á öll undirpróf MÍSL-G gæti hugsanlega stafað af því að listinn prófar í raun aðra þætti málþroskans en önnur undirpróf MÍSL-G.
Source: Skemman
Author: Eva Berglind Ómarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981895928
