Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var tvíþættur. Í fyrsta lagi að kanna tengsl á milli bakgrunns nemenda, fyrri námsárangurs og skuldbindingar þeirra til náms og skóla við að gera hlé á framhaldsskólanámi. Í öðru lagi að kanna hvort hlé frá námi spái fyrir um brotthvarf úr framhaldsskóla að teknu tilliti til þekktra áhættuþátta. Notuð voru gögn úr langtímarannsókninni Námsframvinda nemenda og skilvirkni framhaldsskóla. Gagnasöfnun fór fram árið 2007 og náði til allra almennra framhaldsskóla á landinu. Þátttakendur í þessari rannsókn voru 1326 nemendur. Þeir voru á aldrinum 17 og 18 ára þegar könnunin var lögð fyrir. Niðurstöður aðhvarfsgreiningar sýndu að námshlé spáði fyrir um brotthvarf úr framhaldsskóla. Nemendur sem gerðu hlé á námi voru ólíklegri til að hafa lokið framhaldsskólanámi við 23 og 24 ára aldur. Þetta kom fram að teknu tilliti til bakgrunns nemenda, fyrri námsárangurs og skuldbindingar þeirra til náms og skóla. Þar að auki kom fram að þeir nemendur sem tóku sér meira en árshlé frá námi voru talsvert ólíklegri til að útskrifast samanborið við þá sem tóku árshlé. Meirihluti nemenda sem gerði hlé á námi í einungis eitt ár höfðu útskrifast úr framhaldsskóla þegar þeir voru 23 og 24 ára. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa vísbendingu um, að þó svo nemendur hætti námi, þarf það ekki þýða endalok námsferils þeirra, heldur byrjar nokkur hluti þeirra aftur í námi og lýkur því. Þá komu fram tengsl á milli þess að gera hlé á námi og menntunar foreldra, fyrri námsárangurs nemenda og skuldbindingu þeirra til náms og skóla. Nemendur sem stóðu verr að vígi námslega og áttu foreldra með litla formlega menntun voru líklegri til að taka sér hlé frá námi. Þá voru nemendur sem gerðu hlé á námi að jafnaði með minni metnað í námi og samsömun við skóla, og sýndu meiri óæskilega skólahegðun en þeir sem ekki tóku sér hlé. Fáar rannsóknir hafa beinst að nemendum sem snúa aftur í nám. Aukin þekking ætti að gagnast fagaðilum eins og náms- og starfsráðgjöfum til styðja betur við þennan nemendahóp.
Source: Skemman
Author: Ásbjörn Örvar Þorláksson 1990-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981895997
