Frelsi til að kafa djúpt : skólastarf alþjóðlegs grunnskóla skoðað með hugmyndaramma fjórðu leiðarinnar og speglað í íslenskum veruleika
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Á hinu unga sviði skólaþróunar hefur fólk beint sjónum sínum í æ ríkari mæli að þeim mörgu samverkandi þáttum sem eru farvegir farsæls skólastarfs. Hargreaves og Shirley hafa fjallað um fjórðu leið skólaumbóta þar sem saman koma göfugur tilgangur menntunar, samfélagslegt mikilvægi skóla, fagauður, traust, starfsgleði og jöfnuður. Markmið þessarar eigindlegu rannsóknar var að skoða hvernig fjórða leiðin gæti virkað við raunverulegar aðstæður í ungum, alþjóðlegum grunnskóla í Sádí-Arabíu og jafnframt að rýna í þann lærdóm sem íslenskt skólasamfélag gæti dregið af slíku skólastarfi. Rannsóknarspurningin tók til þriggja þátta: Starfsþróunar kennara, námsmats og leiðarljóss skólans um tilgang og markmið menntunar. Rannsóknin fylgir eigindlegri rannsóknarhefð og gagna var aflað með viðtölum, vettvangsathugunum og athugun á fyrirliggjandi gögnum sem tengjast skólastarfinu. Við greiningu gagna var stuðst við þemagreiningu með hliðsjón af aðferð Braun og Clarke. Niðurstöðurnar leiða í ljós að skólinn samsamar sig að mestu leyti fjórðu leiðinni í þessum þáttum, auk þess sem ýmsir þættir skólamenningarinnar eru í samræmi við hana. Niðurstöðurnar benda til þess að skólinn hafi skýra sýn á þá heild sem námsmat, námskrá og starfsþróun verða að mynda til að farsælt skólastarf geti þrifist. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að skólamenningin einkennist af trausti kennara til nemenda, miklum væntingum, hvatningu til náms (e. academic press) og bjartsýni til náms (e. academic optimism). Starfshættir skóla sem starfar undir merkjum hinnar alþjóðlegu IB-stefnu hafa ekki áður verið bornir saman við fjórðu leið skólaumbóta með þessum hætti, að bestu manna yfirsýn. Skólinn sem til rannsóknar var, hefur náð að tileinka sér vinnubrögð sem byggja á verkefnamiðuðu og hugtakadrifnu námi, metnu á grunni skýrra hæfniviðmiða með fjölbreytt leiðsagnarmat í forgrunni. Það er hið stóra verkefni sem íslenskir grunnskólakennarar standa frammi fyrir næstu misserin og því getur rannsókn þessi verið gagnlegt leiðarljós fyrir bæði kennara, stjórnendur og yfirvöld menntamála.
Source: Skemman
Author: Oddný Sturludóttir 1976
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981933694
