Getur þú ekki bara farið til Reykjavíkur? Mynstur þjónustusóknar í heilbrigðisþjónustu á Suðvesturlandi með tilliti til vinnusóknar til höfuðborgarsvæðisins
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Þjónustusvæði mismunandi byggðakjarna á Íslandi eru misstór eftir tegund þjónustu og hversu sérhæfð hún er. Það getur verið krefjandi að kortleggja þjónustu þar sem margir áhrifaþættir eru til staðar. Í þessari rannsókn er þjónustusókn heilbrigðisþjónustu á Suðvestursvæði landsins með tilliti til vinnusóknar til skoðunar og er markmið hennar að skilgreina þjónustusvæði heilbrigðisþjónustu á svæðinu. Suðvestursvæðið er með landfræðilega sérstöðu vegna nálægðar við höfuðborgarsvæðið þar sem sérhæfð þjónusta og mikið framboð þjónustu er til staða. Einnig eru sterkir þjónustukjarnar heilbrigðisumdæma Vestur- og Suðurlands og Suðurnesja í steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu. Vegna nálægðar við höfuðborgarsvæðið er algengt að íbúar sækja vinnu þangað og ætti því vinnusókn að hafa áhrif á þjónustusókn heilbrigðisþjónustu á Suðvesturlandi. Þjónustusókn til höfuðborgarsvæðisins er minni frá þjónustumiðstöðvum á Suðvestursvæðinu en frá fjarlægari, dreifbýlli svæðum á Suður- og Vesturlandi þegar kemur að sérfræðiþjónustu. Umdæmissjúkrahús á Akranesi og Selfossi eru mest að þjónusta íbúum viðkomandi byggðakjarna heldur en einnig öðrum íbúum umdæmanna. Umdæmissjúkrahús Keflavíkur sinnir jafnri þjónustu til íbúa Keflavíkur og annarra íbúa umdæmanna. Jákvætt samband er á milli vinnu- og þjónustusóknar til höfuðborgarsvæðisins þegar kemur að heilsugæsluþjónustu. Vinnusókn hefur einnig áhrif á hvort einstaklingar sækja heilsugæsluþjónustu í umdæmissjúkrahús þar sem einstaklingar sem sækja vinnu til höfuðborgarsvæðisins eru ólíklegri til að sækja heilsugæsluþjónustu í umdæmissjúkrahús. Því eru vísbendingar um að umdæmissjúkrahús gætu sinnt sérfræðiþjónustu betur fyrir umdæmið í heild sinni þar sem stór hluti íbúa sækja þjónustuna til höfuðborgarsvæðisins.
Source: Skemman
Author: Guðný Rós Jónsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Economics and Econometrics
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981940511
