Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Björkin er ljósmæðrastýrð eining sem stofnuð var árið 2009 og veitir heildræna og samfellda þjónustu á meðgöngu, í fæðingu og fyrstu dagana eftir að barn fæðist. Samfelld ljósmæðraþjónusta í gegnum barneignarferlið nýtur aukinna vinsælda víðs vegar í heiminum og hafa rannsóknir sýnt að samfelld ljósmæðraþjónusta reynist hafa jákvæð áhrif á fæðingarupplifun þeirra kvenna sem hana þiggja. Fæðingarsögur, sem birtast nú í auknum mæli á veraldarvefnum, geta gefið góðar lýsingar á fæðingarupplifunum. Tilgangur: Að skoða reynslu kvenna sem fæða í Björkinni í gegnum fæðingarsögur þeirra sem birst hafa á vef Bjarkarinnar. Ennfremur að kanna áherslur í þjónustu Bjarkarinnar og hvernig ljósmæður hennar stuðla að jákvæðri fæðingarreynslu. Aðferð: Rannsóknin er eigindleg út frá etnógrafískri nálgun. Notast var við frásagnar- og þemagreiningu við greiningu á fæðingarsögum kvennanna sem birt hafa sögur sínar á vef Bjarkarinnar. Í kjölfarið var tekið rýnihópaviðtal við 5 ljósmæður Bjarkarinnar. Með þemagreiningu voru helstu áhersluþættir í þjónustu þeirra greindir. Niðurstöður: Fæðingarreynsla kvenna sem fætt hafa í Björkinni endurspeglast í þremur meginþráðum. Þeir eru 1) undirbúningur fæðingar, 2) jákvæð fæðingarupplifun og 3) jákvæð samskipti. Nokkur stef tilheyra svo hverjum meginþræði. Áherslur í ljósmæðraþjónustu Bjarkarinnar eru einstaklingsmiðaðar. Vilja ljósmæðurnar styðja við ákvarðanatöku skjólstæðinga og stuðla að fullnægjandi faglegri upplýsingagjöf. Mikilvægt finnst ljósmæðrunum að verðandi foreldrar vaxi í hlutverki sínu, fái tækifæri til að vera þau sjálf og upplifi sig við stjórnvölinn í barneignarferlinu. Ályktun: Þegar kona treystir og þekkir ljósmóður sína og hefur stuðningsaðila sem hún treystir er líklegra að konu líði vel í fæðingu sinni. Samfelld ljósmæðraþjónusta Bjarkarinnar styður við jákvæða fæðingarupplifun þeirra kvenna sem þiggja hana. Þetta þjónustuform ætti að efla, rannsaka frekar og vera í boði víðar innan barneignarþjónustunnar á Íslandi. Lykilorð: Fæðingarsögur, fæðingarupplifun, samfelld ljósmæðraþjónusta, ljósmæðrastýrð eining.
Source: Skemman
Author: Ilmur Björg Einarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6981997930
