Gildi og vægi útiveru í lífi foreldra og barna á höfuðborgarsvæðinu
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Á tímum örra tæknibreytinga sem einkenna samfélagið sem við lifum í hefur leikjamenning barna einnig breyst. Börn á Íslandi búa almennt við þau forréttindi að geta leikið sér frjáls úti í öruggu umhverfi þegar þau hafa aldur til, án þess að vera stöðugt undir eftirliti fullorðinna. Nánast hvar sem þau eru búsett á landinu er stutt í náttúruna og opin svæði. Það sama á ekki við um börn sem búsett eru víða á Vesturlöndum, þar sem algengara virðist að foreldrar telji ekki öruggt að leyfa börnum sínum að vera einum úti án eftirlits. Þrátt fyrir þau forréttindi sem íslensk börn búa við virðast þau ekki verja meiri tíma í útiveru og frjálsan leik utandyra í samanburði við önnur lönd. Tilgangurinn með rannsókninni er að skoða gildi og vægi útiveru í lífi foreldra og barna á höfuðborgarsvæðinu. Áherslan er að skoða fyrirbærið útiveru út frá sjónarhorni foreldra, viðhorfum þeirra til útiveru og hreyfingar og þeim áherslum sem foreldrar leggja á útiveru barna í uppeldinu. Tekin voru viðtöl við átta foreldra sem eiga börn á grunnskólaaldri og eru búsettir á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að félagsleg tengsl og áhugi barna fyrir útiveru í félagahópnum hafi meira vægi en aðstæður til útiveru í nærumhverfinu. Foreldrar telja að áhugi barna á skjánotkun og öll sú afþreying sem standi þeim til boða innandyra, sé helsta ástæðan fyrir áhugaleysi barna á útiverunni og þar hafi félagslegi þátturinn mest áhrif. Sérstaklega þegar börn fara að nálgast unglingsaldurinn og börnin í félagahópnum sýni skjánotkun meiri áhuga en útiveru. Niðurstöður benda einnig til að viðhorf foreldra og áhugi þeirra á heilsusamlegum lífsstíl og hreyfingu hefur áhrif á þær áherslur sem foreldrar leggja á hreyfingu og skipulagt íþróttastarf í uppeldinu og þegar kemur að samverustundum fjölskyldunnar. Höfundur vonast til að rannsóknin varpi ljósi á viðhorf foreldra til útiveru barna og að niðurstöður rannsóknarinnar reynist hvatning fyrir stjórnvöld og stefnumótandi aðila til að móta stefnu sem eykur vitund foreldra og forráðamanna um mikilvægi útiveru og frjálsan leik í lífi barna.
Source: Skemman
Author: Birna Sigurjónsdóttir 1981-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Keywords: outdoor play, children's outdoor play, parental attitudes, parental values, children's freedom, children's self-confidence, children's independence, children's self-esteem, child self-discipline, children's creativity, children's curiosity, children's motivation, children's social skills, children's emotional development, children's physical development, child cognitive development, children's language development, children's motor skills, children's play environment, playground equipment
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982034910
