Work

Greining aðalsetningamarka. Mæling á frammistöðu og uppfærslur á splitter.py

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð verður fjallað um mælingu á frammistöðu og uppfærslum á forritinu splitter.py sem greinir aðalsetningamörk í inntakstexta með því að nota tvíundameðaltals-skynjunarnet. Þetta er forrit sem er hluti af taugaþáttunarpípunni iceParsingPipeline. Áður en pípan getur þáttað texta þarf að gera forvinnslu á textanum. Í þessu felst m.a. að skipta textanum í heildarsetningar og að skipta heildarsetningunum í aðalsetningar. Heildarsetning getur e.t.v. verið samsett af tveimur eða fleiri aðalsetningum sem eru tengdar saman með aðaltengingunum og/en/eða/heldur/enda/ellegar í íslensku. Þegar aðaltenging tengir saman tvær aðalsetningar er það kallað aðalsetningamark. Taugaþáttunarpípan hefur verið notuð til að búa til vélþáttaðar málheildir, en frammistaða forritsins splitter.py hefur ekki verið mæld. Markmið verkefnisins sem fjallað er um í þessari ritgerð er að mæla nákvæmni, heimt og f-mælingu fyrir splitter.py og að innleiða uppfærslur í forritið til að bæta þessar niðurstöður. Annað markmið verkefnisins er að láta splitter.py einnig virka fyrir færeysku. Fyrstu niðurstöður sýna að splitter.py gerir villur í rétt rúmlega einum fjórða tilvika. Eftir að uppfærslur hafa verið innleiddar bætist frammistaðan örlítið. Til að bæta frammistöðuna ennfrekar er mælt annað hvort með því að bæta fleiri uppfærslum við splitter.py eða með því að láta splitter.py nota djúptauganet í staðinn fyrir tvíundameðaltals-skynjunarnetið. Tekin eru saman gögn sem splitter.py getur notað til þess að greina aðalsetningamörk í textum á færeysku. Einnig eru gerðar nauðsynlegar uppfærslur á splitter.py til að það virki fyrir færeysku.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982060666
Cites: 10
Cited by:
Related to: 10