Work

Halló, þetta er ég : minningameðferð og notkun lífssögu í umönnun fólks með heilabilun.

Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Tilgangur þessarar heimildasamantektar er að sýna fram á þýðingu minningameðferðar í umönnun einstaklinga með heilabilun. Á síðustu árum hefur orðið töluverð breyting á hugmyndafræði í umönnun aldraðra og þá sérstaklega fólks með heilabilun. Aukin áhersla er lögð á einstaklingsmiðaða umönnun og minningavinnu með þátttöku einstaklingsins og fjölskyldu hans. Kenningar breska sálfræðingsins Kitwood um fimm grunnþarfir einstaklinga með heilabilun, þ.e. huggun, tengsl, hlutdeild, virkni og sjálfsmynd eru hafðar að leiðarljósi. Skráning lífssögu einstaklinga með heilabilun er nauðsynleg forsenda þess að kynnast manneskjunni á bak við sjúkdóminn. Lífssaga er grundvöllur þess að hægt sé að stunda minningavinnu með öldruðum einstaklingum. Rannsóknir sýna að vinna í minningavinnuhópum gefst vel til að mæta áður nefndum fimm grunnþörfum og finnur fólk til andlegrar vellíðunar eftir slíka vinnu og hún eflir virkni. Minningavinna getur farið fram í daglegri umönnun og geta allir sem að henni koma, þ.e. starfsfólk, vistmenn og fjölskyldur þeirra eða aðrir aðstandendur, verið þátttakendur. Einnig er hægt að nota minningavinnu í misstórum hópum, þar sem starfsmaður stjórnar umræðum um ákveðið efni. Heimilislegt umhverfi og hjálpartæki s.s. persónulegir munir þátttakenda og tilbúið fræðsluefni er grundvöllur velheppnaðrar vinnu. Rannsóknir sýna að fólk sem er í heimilislegu og kunnuglegu umhverfi heldur lengur færni og virkni í daglegu lífi. Rannsóknirnar í samantektinni voru eigindlegar og megindlegar, auk samantektarrannsókna, sem getið er í ritrýndum fræðiritum. \nLykilorð: einstaklingsmiðuð umönnun, lífssaga, minningavinna, aldraðir og heilabilun.
Source: Skemman
Authors: Gunnhildur Ósk Sæbjörnsdóttir, Heiðrún Arnþórsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982150677
Cites: 19
Cited by:
Related to: 10