Work

Hver eru áhrif samfélagsmiðla á sjálfsmynd barna á grunnskólaaldri?

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi er lokaverkefni til B.Ed.- prófs, kannað verður hver áhrif samfélagsmiðla eru á börn á grunnskólaaldri. Með mikilli aukningu á notkun samfélagsmiðla er mikilvægt að fylgjast með hvort einhverjar afleiðingar fylgi og markmið ritgerðarinnar er að komast að því. Farið verður yfir rannsóknir sem framkvæmdar eru á Íslandi til þess að kanna líðan grunnskólabarna. Rannsóknir sýna að samfélagsmiðlar hafa bæði jákvæð og neikvæð áhrif á sjálfsmynd barna og unglinga en þau neikvæðu vega þyngra. Mörg börn sýna óábyrga notkun samfélagsmiðla sem getur haft bein áhrif á sjálfsmynd þeirra og annarra barna sem erfitt er að vinna úr. Mikilvægt er að kenna miðlalæsi og að kennarar og foreldrar barna séu meðvitaðir um hvað þau gera á samfélagsmiðlum og viti hverjar afleiðingar þess geta verið. Niðurstöður sýna að foreldrar og forráðamenn verða að vita hvenær á að grípa börnin og meiri fræðslu þarf í grunnskóla landsins og á heimilin um notkun samfélagsmiðla og áhrif þeirra á sjálfsmyndina.
Source: Skemman
Author: Birta María Falsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982287146
Cites: 20
Cited by: 1
Related to: 10