Work

Hreyfifærni leikskólabarna : áhrif „YAP“ á hreyfifærni leikskólabarna

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Grunnurinn að grundvallarfærni í hreyfingu barna er í brennidepli á leikskólaaldri, ástæðan fyrir því er að þessi grundvallarfærni veitir barninu góða hreyfifærni og það hefur áhrif á líf barnsins í framtíðinni hvað varðar íþróttir og fleira. Í þessu lokaverkefni verður fjallað um hreyfifærni barna á leikskólaaldri og mikilvægi þess að byrja efla hreyfifærni þeirra strax í leikskóla. Rannsóknarspurningin sem leiddi þessa rannsóknarritgerð er "hvernig áhrif hefur YAP á hreyfifærni leikskólabarna?". Til að svara rannsóknarspurningunni þá var aflað fræðilegu efni um viðfangsefnið og tekið viðtal við Önnu Karólínu framkvæmdarstjóra Special Okympics á Íslandi. Rannsóknaraðferðin sem var notuð í þessari rannsókn er eigindleg opið viðtal og markmiðið með viðtalinu var að fá betri innsýn inn í YAP á Íslandi. Meginniðurstöður rannsóknarritgerðarinnar er að YAP getur haft veruleg áhrif á hreyfifærni barna, styrkt leikskólastarfið um heilan helling og er frábrugðið frjálsa leiknum vegna þess að þetta hefur áhrif á snemmtæka íhlutun á hreyfifærni barna. Þessar niðurstöður er góð leið til að minna fólk á hvað það er mikilvægt að fara strax að huga að markvissri hreyfiþjálfun hjá börnum í leikskóla.
Source: Skemman
Author: Viktoría Sól Sævarsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982290462
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10