Work

Hringrásarhagkerfi og íslenskur byggingariðnaður: Staða innleiðingar hjá litlum og meðalstórum byggingarverktökum

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Byggingariðnaðurinn gegnir mikilvægu hlutverki við innleiðingu á hringrásarhagkerfi þar sem hann er ein af þeim atvinnugreinum sem stuðla hvað mest að loftslagsbreytingum þar sem hann nýtir í starfsemi sinni umtalsverðar auðlindir við nýbyggingar, auk þess sem mikill úrgangur myndast í byggingarferlinu og við niðurrif bygginga. Til þess að hindra að auðlindaskortur eigi sér stað er nauðsynlegt að breyta neysluvenjum og framleiðsluaðferðum á róttækan hátt og þar koma sjálfbær viðskiptalíkön, til að mynda hringrásarhagkerfið, sterk inn. Hringrásarhagkerfi stuðlar ekki eingöngu að minni sóun heldur myndast einnig ný efnahagsleg tækifæri með tilstuðlan skilvirkni og nýsköpunar. Í þessari ritgerð er fjallað um stöðu innleiðingar hringrásarhagkerfis í byggingariðnaði hjá litlum og meðalstórum byggingarverktökum. Meginmarkmið verkefnisins er að kanna hvort þessir aðilar fylgi enn línulegri hugsun hvað varðar forgangsröðun á aðgerðum innan atvinnugreinarinnar eða hvort einkenni hringrásarhugsunar séu til staðar. Fjallað er um hvaða áhrif innleiðing hringrásarhagkerfis í byggingariðnaði getur haft, hvað byggingarverktakar eru að gera í umhverfismálum og hver skoðun þeirra er á því að samþætta hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins eigin starfsemi. Rannsóknin er eigindleg en tekin voru viðtöl við sex aðila sem starfa hjá litlum eða meðalstórum byggingarverktökum. Niðurstöðurnar benda til þess að byggingafyrirtæki af þessari stærðargráðu hafi ekki formlega hafið breytingar á starfsháttum í gegnum allt byggingarferlið út frá hugmyndafræði hringrásarhagkerfisins heldur sé innleiðingin enn á frumstigi. Viðmælendurnir voru almennt jákvæðir fyrir hringrásarhagkerfinu og meðvitaðir um að hægt sé að bæta margt í byggingarferlinu svo draga megi úr sóun. Rannsóknin veitir innsýn í viðhorf byggingarverktaka af þessari stærðargráðu til hringrásarhagkerfisins og hvað þeir eru að gera í umhverfismálum. Fræðilegt gildi rannsóknarinnar felst í því að varpa ljósi á viðhorf lítilla og meðalstórra byggingarverktaka til hringrásarhagkerfisins, hver staðan sé og hvaða áskoranir og tækifæri þeir sjá við að samþætta þessar áherslur eigin starfsemi en það viðfangsefni hefur ekki verið rannsakað áður hérlendis.
Source: Skemman
Author: Harpa Snorradóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982324066
Cites: 48
Cited by:
Related to: 10