Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Þróun þekkingar á samspili þeirra þátta sem hafa áhrif á heilsutengda færni fólks hefur leitt til breyttrar hugsunar og viðmiða innan heilbrigðis- og velferðarmála á alþjóðavísu. Rannsóknir sýna að gæði við innleiðingu nýrra leiða í meðferð og þjónustu hafa áhrif á útkomu. Skoðuð voru þrjú verkefni sem snúa að innleiðingu þjónustuúrræða við fólk með færniskerðingu hér á landi. Gagna var aflað með hálfopnum viðtölum við lykilaðila. Tilgangurinn var að kanna hvernig ný þjónusta var innleidd, skoða hvort aðferðir verkefnastjórnunar voru notaðar og fá fram reynslu og upplifun þeirra sem stýrðu framkvæmd. Niðurstöður sýndu að innleiðingarferlið sem slíkt var ekki skýrt afmarkað sem verkefni. Mismunandi var hversu markvisst aðferðum verkefnastjórnunar var beitt. Helstu tæki og tól voru áætlanir um kostnað, tíma, verkþætti og samskipti. Reynslan af því hvað ýtti undir ferlið og hvað hindraði var í samræmi við þekkta áhrifaþætti þegar stjórnun breytinga og innleiðing á þessu sviði er annars vegar. Niðurstöður eru afmarkaðar en í ljósi þeirra og fyrirliggjandi þekkingar má færa rök fyrir því að frekari rannsókna sé þörf og að verkefnastjórnun eigi erindi þegar innleiða á nýja þjónustu á þessum vettvangi. \n \nLykilorð: Breytt viðhorf, færniskerðing, innleiðing þjónustu, verkefnastjórnun.
Source: Skemman
Author: Þóra Leósdóttir 1962-
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Keywords: new service introduction, project management, project management methodology, project success factors, project failure factors, project planning, project control, project monitoring, project evaluation, project duration, project quality, project management tools, project management training
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982555796
