Work

Íþróttamenn og hugræn færni : eru tengsl á milli íþróttaiðkunar og stýrifærni?

Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur og tilgangur: Undanfarin ár hefur áherslan á hugræna þáttinn sem að fylgir íþróttum aukist mikið og verið meira í umræðunni. Í þessari rannsókn var rannsakað samband þeirrar hugrænu færni sem tengjast stýrifærni (e. executive functioning) einstaklinga, við ástundun íþrótta. Ásamt því að fara yfir niðurstöður fyrri rannsókna var einnig gerð eigin rannsókn þar sem hugræn færni þátttakenda var prófuð. Rannsóknarspurningin sem unnið var með var: Eru tengsl á milli íþróttaiðkunar og stýrifærni? Rannsóknir hafa sýnt að íþróttamenn virðast almennt sýna betri útkomu á prófum á stýrifærni og að hugræn færni geti haft jákvæð áhrif á árangur í íþróttum. \nAðferðafræði: Þátttakendur rannsóknarinnar voru 16 karlmenn á aldrinum 21-33 ára og luku allir prófi sem að innihélt fjögur mismunandi verkefni sem að prófuðu ólíka hugræna færni tengda stýrifærni. Verkefnin fjögur sem þátttakendur leystu voru Posner verkefni, kennslaminnisverkefni, Simon verkefni og loks hugarsnúningsverkefni. Við úrvinnslu gagna sem fengust úr prófinu, voru niðurstöður þeirra átta einstaklinga sem að skipuðu hóp íþróttamanna samkvæmt skilgreiningu rannsóknarinnar, bornar saman við hóp þeirra átta einstaklinga sem töldust ekki til íþróttamanna og mynduðu ekki íþróttahópinn eða samanburðarhópinn. \nNiðurstöður: Megintilgáta rannsóknarinnar var sú að íþróttamennirnir sem hópur myndu almennt sýna betri útkomu á prófinu, þar sem að fyrri rannsóknir hafa sýnt að líkamleg hreyfing og ástundun íþrótta geti haft jákvæð áhrif á hugræna færni. Niðurstöður leiddu í ljós að ekki var afgerandi, né marktækur munur á milli hópanna fyrir neinn samanburð á þáttum prófsins. Niðurstöður sýndu hins vegar að íþróttahópurinn hafði að meðaltali hærra hlutfall réttra svara á þremur af fjórum verkefnum prófsins, ásamt því að verða fyrir minni áhrifum af misvísandi upplýsingum eða truflunum innan ákveðna verkefna prófsins. \nÁlyktanir: Heilt yfir sýndu niðurstöður ekki merki um afgerandi tengsl á milli íþróttaiðkunar og stýrifærni, þar sem enginn marktækur munur kom fram á milli hópanna á þáttum prófsins. Niðurstöður veittu hins vegar gögn sem að gáfu vísbendingar um að íþróttahópurinn hafi staðið sig aðeins betur á prófinu, og hneigðu þannig í sömu átt og niðurstöður og tilgátur fyrri rannsókna, sem og þessarar, að íþróttamenn virðast almennt búa yfir meiri stýrifærni en þeir sem að ekki stunda íþróttir. \n \nLykilhugtök: Hugræn færni, stýrifærni, íþróttir.
Source: Skemman
Authors: Benóný Sigurðarson, Bjarni Mark Antonsson
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982660484
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10