Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar var að skoða hvort væri kynjamunur á líðan ungmenna í grunnskólum landsins. Margar rannsóknir hafa verið framkvæmdar á síðastliðnum áratugum á líðan ungmenna bæði hérlendis og erlendis. Stór partur af þeim rannsóknum sem hafa verið framkvæmdar á Íslandi eru kannanir sem lagðar voru fyrir ungmenni í sjötta til tíunda bekk í grunnskólum landsins. Fyrir þessa ritgerð var stuðst viðfyrirliggjandi gögn þar sem íslensk ungmenni svöruðu spurningum um heilsu sína og líðan, um fjölskylduhagi, upplifun sína af grunnskólanum, ,um tómstundir og áhugamál, félagslegar aðstæður, samfélagsmiðla, kynlíf og klám, ofbeldi og einelti og sjálfsmynd. Gögnin koma úr skýrslunum „Ungt fólk 2022“ frá Rannsóknum og Greiningu, „Íslenska æskulýðsrannsóknin: Farsældarvísar vor 2023 frá Menntavísindastofnun Háskóla Íslands og „Félagstengsl íslenskra barna og ungmenna“ frá Embætti landlæknis 2020. \nTil að fá sem nákvæmast svar við rannsóknarspurningunni var notast við rannsóknir, margar fræðigreinar og aðrar opinberar upplýsingar sem snúa að líðan ungmenna og þáttum sem geta haft áhrif á líðan þeirra. Niðurstöður ritgerðarinnar leiddu meðal annars í ljós að með aukinni tækni og hnattvæðingu hefði hraðinn í samfélaginu aukist mjög mikið, kröfur og álag í samfélaginu er orðið mjög mikið og eykur það á vanlíðan ungmenna. Notkun, viðvera og neikvæðar birtingarmyndir á samfélagsmiðlum höfðu mikil áhrif á sjálfsmynd og líðan ungmenna, þar sem þau voru farin að bera sig saman við aðra og upplifa sig ekki nóg. Sjálfstraust og sjálfsálit hjá stelpum var mikið lægra en hjá strákum. Auk þess leiddu niðurstöður í ljós að samvera með fjölskyldunni, stöðugleiki og samvinna heimilis og skóla hafði mjög jákvæð áhrif á líðan ungmenna. \nLykilhugtök: kynjamunur, líðan, ungmenni, sjálfsmynd ungmenna, foreldrar.
Source: Skemman
Author: Guðrún Elva Lárusdóttir
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982815092
