Year: 2009
Type: dissertation
Abstract: Rannsókn þessi var gerð til þess að athuga hvort kynjamunur væri á leik barna í \nkynjaskiptum leikskóla. Í inngangi er saga kynjaskipts skólastarfs rakin, fjallað \num kynjamun, staðalmyndir og ójöfnuð. Þá er farið ítarlegar í kynjamun barna og \ntalað um hvernig núverandi rannsókn skiptir máli. Búist var við því að \nkynjamunur kæmi fram í kynjaskiptum hópum en ekki í kynjablönduðum hópum. \nÞátttakendur voru 24 börn af kynjaskiptum leikskóla Hjallastefnunnar. \nKynjamunurinn var kannaður með því að athuga hvort stúlkum eða drengjum \ngengi betur að skipta á milli sín leikfangi. Börnin voru fjögur saman í hópi og \nskiptu ýmist á milli sín búnaði til að blása sápukúlur eða bolta. Í boltamælingunni \nsýndu drengir aðeins hærri tíðni óæskilegrar hegðunar heldur en stúlkur en annars \nfannst ekki kynjamunur. Tilgáta tvö um að kynjamunur kæmi ekki fram í \nkynjablönduðum hópum stóðst. Ýmislegt gæti þó haft áhrif á niðurstöður þessarar \nrannsóknar. Til dæmis var úrtakið mjög lítið og bara af einum leikskóla auk þess \nsem það var fengið með hentugleika.
Source: Skemman
Author: Sigrún Lilja Jóhannesdóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6982843649
