Year: 2014
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn er fjallað um leiðsagnarmat, þýðingu þess og notkun í kennslu. Höfundur nýtti sér hugmyndir og aðferðir slíks mats við framkvæmd námsmats í eigin starfi sem gítarkennari. Um er að ræða fræðilega rannsókn með tengingu í starf höfundar. Tekið var mið af rannsóknum þeirra Paul Black og Dylan Wiliam frá lokum síðustu aldar og ýmsum skyldum rannsóknum. Skoðað var hvaða skilning bæri að leggja í leiðsagnarmat og hvaða þýðingu það gæti haft fyrir nám og kennslu í gítarleik. Með leiðsagnarmati er sjónum fyrst og fremst beint að hinu óformlega mati sem fram fer í sjálfu kennsluferlinu. Tilgangur þess er því frábrugðinn tilgangi lokamats sem er formleg mæling við lok námstíma á því hvað áunnist hefur. Á undanförnum árum hefur leiðsagnarmati vaxið fiskur um hrygg í skólamálaumræðu og opinberum námskrám. Tilgangur verkefnisins er að varpa ljósi á hvað felst í leiðsagnarmati og að kanna hvernig það nýtist við námsmat í gítarkennslu. Sem gamalreyndur gítarkennari taldi höfundur sig finna samsvörun milli eigin vangaveltna og reynslu í starfi og þeirra hugmynda sem rúmast innan matsfræða þegar leiðsagnarmat er annars vegar. Þar er átt við mikilvægi góðrar endurgjafar, þátttöku nemenda í að meta eigið nám, sjálfræði nemenda, áhugahvöt og innri áhuga, gildi samvinnu í námi og skýr námsmarkmið.
Source: Skemman
Author: Guðjón Steingrímur Birgisson 1965
Institution: Iceland University of the Arts
Language: Icelandic
Subfield: Music
Field: Arts and Humanities
Domain: Social Sciences
Keywords: formative assessment, feedback, music education, music teachers, student self-assessment, student reflection, student motivation, student engagement, student independence, student self-confidence, student self-regulation, student self-discipline, student self-competence, student self-esteem, student self-achievement, student self-attitude
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983041790
