Work

Leiðir til að efla lausnarleit orðadæma í stærðfræði

Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er fjallað um hvernig hægt er að nýta kennslu í að leysa orðadæmi til að efla stærðfræðilæsi, gagnrýna hugsun og lausnarleit í stærðfræði. Markmiðið er að skoða, greina og samþætta fræðilegar kenningar og rannsóknarniðurstöður til að draga saman hvaða kennsluaðferðir hafa reynst rannsakendum árangursríkar í kennslu orðadæma. Rýnin byggir á ítarlegri greiningu á fyrirliggjandi rannsóknum og fræðilegu efni sem snertir stærðfræðikennslu, stærðfræðilæsi, líkanagerð í stærðfræði, myndræna framsetningu við lausnarleit, notkun kennsluaðferða sem miða við að greina dæmi og kennsluaðferðir sem efla sjálfsgreiningu og skilning á eigin hugsun. Helstu aðferðir þessarar rýni fólust í að skoða fyrirliggjandi rannsóknir og fræði til að skilja hvaða aðferðir eru árangursríkar og í hvaða samhengi þær nýtast til að efla stærðfræðikennslu. Skrif fræðimanna leggja til að í kennslu sé lögð áhersla á hagnýta nálgun við kennslu á orðadæmum með fjölbreyttum dæmum sem endurspegla raunverulegar aðstæður til að kennsla skili sem mestum árangri. Rannsóknir benda einnig á mikilvægi þess að skoða orðadæmi út frá vitsmunalegum, samfélagslegum og menningarlegum sjónarmiðum. Stærðfræðilæsi er þar með mikilvægur þáttur í lausn orðadæma og kennarar þurfa að laga kennsluaðferðir að einstaklingsmun nemenda. Myndræn framsetning er einnig mikilvæg til að auðvelda skilning og lausnarleit. Kennsluaðferðir sem þjálfa nemendur í að hugsa um eigin hugsanir reynast einnig árangursríkar í að samþætta ólíkar aðferðir í heildstæða kennslu. Rannsóknir mæla með að samþætta mismunandi kennsluaðferðir með slíkum aðferðum til að mæta þörfum nemenda og efla sjálfstæða hugsun og hæfni í lausnarleit
Source: Skemman
Author: Baldvin Kári Kristjánsson
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983049699
Cites: 25
Cited by:
Related to: 10