Work

Leiðsagnarmat og menntun fyrir alla : skoðanir og viðhorf kennara á leiðsagnarmati í tengslum við menntun fyrir alla

Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Ritgerð þessi fjallar um skoðanir og viðhorf kennara til leiðsagnarmats í tengslum við menntun fyrir alla. Lögð er áhersla á leiðsagnarmat í aðalnámskrá grunnskóla og að sama skapi gera bæði aðalnámskrá og lög um grunnskóla ráð fyrir því að allir skólar bjóði upp á menntun fyrir alla. Áhugavert er að skoða hvernig þessir tveir þættir fléttast saman og hvort kennarar gera ráð fyrir hvoru tveggja í sinni kennslu. Menntun fyrir alla snýst um jafnan aðgang allra til náms og að öllum nemendum séu gefin tækifæri til að ná sínum markmiðum sama hver staða þeirra er. Leiðsagnarmat snýst í stuttu máli um að leiðbeina nemendum jafnt og þétt að sínum markmiðum óðháð því hvar aðrir nemendur standa. Rannsóknin sem gerð var fellur undir eigindlega rannsóknaraðferð. Viðtöl voru tekin við fimm kennara á yngsta stigi í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu í tengslum við efnið. Leitast var eftir skoðunum kennara bæði á leiðsagnarmati og menntun fyrir alla ásamt því að kanna hvernig leiðsagnarmat er nýtt fyrir alla nemendur. Niðurstöður voru þær að kennarar nota leiðsagnarmat nokkuð mikið í sinni kennslu. Allir skólar gera ráð fyrir menntun fyrir alla en ýmislegt virðist vanta upp á til þess að gera framkvæmd þess betri. Leiðsagnarmat virðist þó henta vel fyrir alla nemendur þar sem kennarar nefna að auðvelt sé að aðlaga leiðsagnarmatið að öllum nemendum og þar með fléttist þetta tvennt vel saman. Niðurstöður ríma vel við fyrri rannsóknir þar sem kemur fram að framkvæmd menntunar fyrir alla er ekki auðveld og margt sem þarf að skoða betur. Leiðsagnarmat geri þó ráð fyrir að hægt sé að mæta öllum nemendum og aðlaga nám að hverjum og einum. Þannig ætti leiðsagnarmat að henta vel í tengslum við menntun fyrir alla.
Source: Skemman
Author: Harpa Dögg Steindórsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983056062
Cites: 19
Cited by:
Related to: 10