Work

Lífsstílsbreyting til framtíðar hjá of feitum einstaklingi

Year: 2015
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn var einn þátttakandi þjálfaður í þrjá mánuði. Þátttakandi var 27 ára karlmaður í ofþyngd (154kg) og var markmiðið að innleiða eins mikla breytingu á lífsstíl og unnt væri yfir þessa þrjá mánuði. Verkefnið var unnið sem hluti af eins árs markmiði. Þátttakandinn fékk líkamlega þjálfun og ráðgjöf varðandi mataræði. Fyrir þjálfun var þátttakandi vigtaður og mælt var mittisummál. Einnig var fylgst með árangri hans í líkamsrækt og var bæði fylgst með breytingu á styrk og þoli. Niðurstaðan var sú að rannsakendum tókst ekki að létta þátttakanda en tóks samt að stöðva þá stöðugu þyngdaraukningu sem hafði átt sér stað á árunum fyrir rannsókn. Við lok rannsóknar var þátttakandi einnig farinn að stunda líkamsrækt og borða hollari mat heldur en áður. Þátttakandi náði svo góðum árangri í þeim æfingum sem hann stundaði í líkamsrækt yfir þennan tíma. Þar má taka bekkpressu sem dæmi en þar fór þátttakandi úr 60kg upp í 105kg á þessa þriggja mánaða tímabili. Þeir þættir sem rannsakendur telja að hafi komið í veg fyrir betra gengi voru félagslegir og sálfræðilegir þættir. Þetta verkefni gæti reynst góður grunnur fyrir áframhaldandi þjálfun til eins árs.
Source: Skemman
Authors: Jóhann Jónsson 1987-, Loftur Páll Eiríksson 1992-
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983154766
Cites: 28
Cited by:
Related to: 10