Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Umræðan um fjölgun öryrkja hefur verið áberandi undanfarin ár. Helsta áhyggjuefnið snýr að því hve ör fjölgun ungra öryrkja hefur verið og hvaða afleiðingar sú fjölgun muni hafa í för með sér. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna aðstæður einstaklinga á aldursbilinu 18 til 39 ára sem hafa verið metnir til endurhæfingar eða örorku og glíma við stoðkerfissjúkdóma eða geðraskanir aðrar en meðfæddar. Kannaðar verða félagslegar og efnahagslegar aðstæður þessara einstaklinga auk þess sem starfsreynsla og heilsufar verður kannað með það að markmiði að greina hvort finna megi hindranir fyrir núverandi þátttöku í námi eða á atvinnumarkaði. \nRannsóknin byggir á megindlegri aðferð þar sem rannsakandi notaðist við fyrirliggjandi gögn. Gagnasafnið byggist á rannsókn sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann árið 2016 fyrir Velferðarráðuneytið. Markmið þeirrar rannsóknar var að kanna stöðu ungs fólks með endurhæfingar- eða örorkulífeyrir og reynslu þeirra af stuðningi. Á tímabilinu 2. maí til 20. júní árið 2016 var gagna aflað með net- eða símakönnun. Þátttakendur voru einstaklingar á aldrinum 18 til 39 ára sem glímdu við stoðkerfissjúkdóma eða geðraskanir aðrar en meðfæddar samkvæmt örorkumatsskrá Tryggingastofnunar ríkisins og höfðu fengið endurhæfingar- eða örorkulífeyrir á árunum 2012 til 2015. Heildarsvarhlutfall var 65%, eða 457 einstaklingar af 709. \nHelstu niðurstöður þessarar rannsóknarinnar sýna fram á að einkenni um sálfélagslega vanlíðan höfðu komið upp snemma á lífsleiðinni. Menntunarstig svarenda var lágt, margir hverjir höfðu horfið frá framhaldsskólanámi og ekki náð að fóta sig á vinnumarkaði í kjölfarið. Helstu ástæðurnar sem hindruðu svarendur við að fara í nám eða starf vörðuðu heilsufar, óöryggi um framfærslu ásamt því að mæta skilningsleysi og fordómum í eigin garð vegna skertrar starfsgetu. \nLykilhugtök: Ungt fólk, endurhæfing, örorka, stoðkerfissjúkdómar, geðraskanir, félagsleg einangrun, fordómar, virkni, heilsa og hindranir.
Source: Skemman
Author: María Björk Jónsdóttir 1993-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983164301
