Work

Liðsheild í íþróttum

Year: 2011
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Rannsókn var gerð á liðsheild í íþróttum í mismunandi íþróttagreinum. Liðsheild var mæld út frá sex þáttum: Markmið, skuldbinding, hlutverk, virðing, samskipti og samfella í þjálfun. 243 íþróttamenn úr 11 íþróttagreinum svöruðu rafrænum spurningalista. Þeir voru beðnir um að meta liðsheild og áherslur á liðsheild í sínu liði/hópi. Niðurstöður sýndu að mikill meirihluti þátttakenda leggja áherslu á liðsheild. Þá sýndu niðurstöður að konur leggja meiri áherslu á liðsheild en karlar. Konur sem æfa fimleika voru líklegastar til að telja liðsheild í sínu liði mjög góða. Liðsheild mældist hæst hjá þeim íþróttamönnum sem æfðu frjálsar íþróttir. Íþróttamenn sem æfa fimleika og handknattleik sögðu mikla áherslu vera lagða á liðsheild í sínu liði/hópi. Íþróttagreinar voru flokkaðar eftir einstaklingsíþróttum annars vegar og hópíþróttum hins vegar og mældist liðsheildin hærri í einstaklingsíþróttum þótt meiri áhersla væri lögð á liðsheild innan hópíþrótta.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983194007
Cites: 17
Cited by:
Related to: 10