Work

„Líttu fyrst í eigin barm“ - Sjálfsvitund stjórnenda

Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Umfjöllun um sjálfsvitund hefur aukist verulega síðustu áratugi og sjálfsvitund hefur verið tengd við hugtök eins og tilfinningagreind og sjálfsþekkingu. Það hefur almennt þótt jákvætt að hafa sjálfsvitund en hún hefur verið skilgreind á margan hátt hingað til. \nÍ þessari ritgerð er gerð grein fyrir nýrri skilgreiningu á hugtakinu sjálfsvitund sem mótuð var af Carden o.fl. (2022) en hún er eftirfarandi: Sjálfsvitund samanstendur af mörgum þáttum sem geta þróast með einbeitingu, mati og endurgjöf og gefur einstaklingnum vitund um innra ástand (tilfinningar, hugsun, lífeðlisfræðileg viðbrögð), sem knýr áfram hegðun hans og gefur honum vitund um hvaða áhrif hún hefur á aðra. \nMarkmið ritgerðarinnar var að leita svara við því hvaða áhrif það hafi að stjórnendur hafi sjálfsvitund og hvort sjálfsvitund sé mikilvæg fyrir stjórnendur. Einnig var leitað svara við því hvort stjórnendur á Íslandi telji sig hafa sterka sjálfsvitund og hvort þeir hafi raunverulega sjálfsvitund. \nRannsóknin var í formi megindlegrar könnunar um sjálfsvitund sem framkvæmd var þannig að spurningalisti var settur á Facebook og Linkedin síðu höfundar og óskað eftir þátttakendum. Spurningarnar voru einnig lagðar fyrir félagsmenn Verkefnastjórnunarfélagsins og faghópsins leiðtogafærni hjá Stjórnvísi. Alls fengust 229 svör þar af voru 202 svör frá stjórnendum. Sjálfsvitundin var mæld með AOM mælitækinu (e. the Awareness Outcomes Measure) sem Sutton bjó til og birti í byrjun árs 2023. \nNiðurstaða rannsóknarinnar var sú að stjórnendur á Íslandi telja mikilvægt að stjórnendur hafi sjálfsvitund og þeir telja sjálfa sig hafa sterka sjálfsvitund. Einnig sýndi niðurstaðan að stjórnendur á Íslandi mælast með háa sjálfsvitund.
Source: Skemman
Author: Sóley Ragnarsdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983240245
Cites: 72
Cited by:
Related to: 10