„Maður þarf svolítið að skipta um gír til að takast á við ný verkefni“ : breytt hlutverk starfsmanna: úr þjónustu í kennslu fullorðinna
Year: 2011
Type: dissertation
Abstract: Sjaldan hefur tækninni fleygt eins mikið fram og undanfarna áratugi. Aukin tæknivæðing hefur áhrif á allt okkar líf, hvort sem eru daglegar athafnir eða vinnulag. Hluta þessarar tækniþróunar má rekja til tölvunn-ar sem nú er nánast til á hverju heimili og langstærstur hluti landsmanna orðin nettengdur. Aukin tölvueign og netvæðing hefur gert það að verkum að einstaklingar geta nú orðið sinnt málum sínum rafrænt, óháð stund og stað. Á sama tíma sjá fyrirtæki og stofnanir möguleika í aukinni hagræðingu og betri þjónustu með rafrænni þjónustu. \nMeð rannsókninni var ætlunin að skoða áhrif tæknivæðingar og auk-innar rafrænnar þjónustu á starfsemi þjónustuvers Tryggingastofnunar ríkisins, en hún er ein þeirra stofnana sem tekið hefur tæknina í sínar hendur og er sífellt að auka rafræna þjónustu. Þessar breytingar hafa þó óhjákvæmilega í för með sér breytingar á hlutverki og starfsháttum starfsmanna, þar sem þeir þurfa að læra að takast á við nýtt hlutverk. Í rannsókninni er verið að skoða hvernig starfsmenn takast á við breyting¬arnar og hvernig þeir læra nýtt hlutverki. Einnig var kannað viðhorf þeirra til námskeiðsferlis sem fór af stað eftir áramótin 2011. \nRannsóknin byggist á viðtölum við starfsmenn þjónustuversins auk deildarstjóra. Þetta eru þeir starfsmenn sem breytingarnar hafa mest áhrif á og þeir hafa tekið þátt í umræddu námskeiðsferli. Tilgangur rann-sóknarinnar var að skoða hvernig nám fer fram hjá starfsmönnunum og hvernig þeir læra að takast á við hið nýja hlutverk. \nHelstu niðurstöður eru þær að stærstur hluti náms þeirra fer fram á vinnustaðnum með samskiptum milli starfsmanna. Þeir eru duglegir að leita til hver til annars ef upp koma vandamál eða annað sem þarf að leysa úr. Flestir starfsmannanna töldu sig hafa lært mikið á nám-skeiðsferli um fullorðna einstaklinga sem námsmenn, þó þeir kæmu ekki auga á það í fljótu bragði hvernig þeir nýttu sér það í starfi. Námskeiðið hefði engu að síður komið þeim til góða. Einnig kemur fram hversu mikilvægt er að starfsmenn sjái tilgang með náminu og að námsefni sé við hæfi þeirra. \nÍ verkefninu er komið inn á mikilvægi þess að skipuleggja árangursríka starfsþjálfun, að vinnustaður ýti undir lærdómsmenningu og hversu mikil áhrif viðhorf starfsmanna hafa á þátttöku í námsferli og útkomu þess.
Source: Skemman
Author: Guðrún Edda Baldursdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Keywords: job roles, role transition, digital transformation, digital services, online services, technology adoption, workplace learning, organizational change, organizational culture, organizational learning, employee resistance to change, organizational communication, organizational leadership, organizational values, organizational goals, organizational performance, organizational behavior
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983334726
