Work

Meiðsli í ballett og fimleikum: Tíðni, tegundir meiðsla, áhættuþættir og aðkoma sjúkraþjálfara

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Ballett og fimleikar eru greinar sem reglulega eru nefndar samhliða umfjöllun um háa tíðni álagsmeiðsla, átraskana og fleiri kvilla sem gjarnan fylgja þeim greinum sem falla undir fagurfræðilegar íþróttir. Greinarnar eru að mörgu leyti líkar þó svo að önnur teljist til listgreina og hin til íþrótta. Báðar krefjast mikils liðleika, styrks og aga frá iðkendum sem stunda sérhæfða þjálfun frá unga aldri. Þetta verkefni er fræðileg samantekt með það markmið að kanna þær rannsóknir sem gerðar hafa verið á tíðni, tegund og forvörnum meiðsla í ballett og fimleikum auk aðkomu sjúkraþjálfara að forvörnum og meðferð. Fjölmargir þættir hafa áhrif á þróun meiðsla og í þessu verkefni verður fjallað um þá þætti sem vega þyngst í hvorri grein fyrir sig en einnig hvort þar megi sjá sameiginlega þætti. Rannsóknir hafa sýnt fram á háa tíðni meiðsla í báðum greinum eða allt að 5,3 meiðsli fyrir hverjar 1000 klst ástundunar. Í ballett eru álagsmeiðsli algengari, um 64-72% á móti 35,8-40,6% í fimleikum, en í fimleikum er tíðni bráðra meiðsla hærri eða um 52-83,4% á móti 28-40% í ballett. Neðri útlimir verða oftast fyrir áverkum og þá helst ökklinn. Helstu áhættuþættir meiðsla eru æfingaálag, hærri aldur og erfiðleikastig hjá báðum greinum. Einnig hafa þessir hópar tilhneigingu til að snúa aftur til æfinga eftir meiðsli áður en fullum bata er náð og jafnvel halda áfram að æfa þrátt fyrir að meiðsli séu til staðar. Höfundar telja mikla þörf á aukinni aðkomu sjúkraþjálfara að forvörnum í formi þjálfunar og eftirfylgni eftir meiðsli í þessum greinum.
Source: Skemman
Authors: Kara Elvarsdóttir 1991, Þórdís Ólafsdóttir 1989
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983359189
Cites: 84
Cited by:
Related to: 10