Maður festir bara rætur. Upplifun leikskólakennara sem hafa starfað yfir 15 ár í sama leikskólanum af starfi og vinnustað
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Miklar breytingar hafa orðið á starfi leikskólakennara síðastliðin 20 ár. Fjölmargir þættir hafa haft mótandi áhrif á starfsemi leikskóla og störf leikskólakennara eins og gríðarleg fjölgun barna í leikskólum, breytingar á menntun leikskólakennara og auknar kröfur gerðar til leikskóla sem menntastofnana. Leikskólar eru einnig fjölbreyttir vinnustaðir byggðir upp af fólki þar sem ríkja fjölbreyttir siðir, hefðir og venjur sem setja blæ sinn á vinnustaðinn. Ýmsir þættir móta því menningu vinnustaðarins þar sem hún þróast yfir langan tíma og rætur hennar liggja djúpt innra með vinnustaðnum. \nMarkmið rannsóknarinnar er að fá fram upplýsingar um upplifun leikskólakennara með langan starfsaldur á sama vinnustað, eða meira en 15 ár, af vinnustað sínum og starfi. Jafnframt að fá innsýn í helstu breytingar sem orðið hafa á starfinu undanfarin ár. Gerð var eigindleg rannsókn þar sem tekin voru viðtöl við átta leikskólakennara sem starfa á sjö leikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Niðurstöður benda til þess að vinnustaðir þátttakenda einkennist af sterkum starfsmannakjarna sem hefur starfað saman um langt árabil. Starfsmenn eru farnir að þekkjast vel eftir langan tíma og væntumþykja og vinátta einkennir kjarnahópinn. Á vinnustöðum þeirra hefur verið töluverður stöðugleiki á starfsmönnum í gegnum tíðina. Einnig kom fram að stjórnandinn er talinn geta verið stór áhrifavaldur varðandi þann starfsanda sem ríkir á vinnustað. Æskileg einkenni stjórnanda eru að hann sé mannlegur, skipulagður, jákvæður, styðjandi, sanngjarn, traustsins verður, hvetjandi og sýnilegur. Í þeim leikskólum þar sem starfsmannakjarninn hefur breyst mikið sem og stjórnunin eru þátttakendur óánægðari í starfi og meiri líkur á að þeir hugsi sér til hreyfings. Í niðurstöðum kemur einnig fram að leikskólakennarar upplifa að miklar breytingar hafi orðið á starfinu yfir starfstímann og eru viðhorfin jákvæð til aukinnar fagmennsku í starfi en neikvæð varðandi auknar kröfur, starfsmannaveltu og álag sem af því skapast. Það gleðilegasta, mest gefandi og skemmtilegasta við starfið er vinnan með börnunum og upplifun þátttakenda að kröfur um ýmis önnur störf séu á kostnað hennar.
Source: Skemman
Author: Anna Bjarnadóttir 1971
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983400015
