Work

Mikilvægi skelbeinsþykktar í lærleggshálsi og lærlegg með tilliti til brota

Year: 2012
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Áhætta á að mjaðmarbrotna eykst hratt með aldri og er talsvert hærri meðal kvenna. Beinþéttni í nærenda lærleggs er sá þáttur sem mest hefur verið notaður sem forspárþáttur um mjaðmarbrot. Rannsóknir hafa bent til að við fall á stærri lærhnútu myndast oftast sprunga, sem endar með broti innan liðpokans, á efra yfirborði miðs lærleggsháls. Meginmarkmið þessara þriggja rannsókna var að öðlast meiri skilning á eðli mjaðmarbrota og hugsanlega bæta mat á áhættu á mjaðmarbroti. Allir þátttakendur voru eldra fólk sem var hluti af Öldrunarrannsókn Hjartaverndar. Í rannsókn I (framsýn tilfellaviðmiðuð rannsókn, 143 mjaðmarbrot og 298 einstaklingar í viðmiðunarhópi); var þykkt skelbeins í þversniði á miðjum lærleggshálsi metin út frá sneiðmyndum af mjöðm í líffærafræðilegum fjórðungum sem áhættuþáttur fyrir mjaðmarbroti. Niðurstöðurnar benda til að þunnt skelbein á efra yfirborði miðs lærleggsháls gæti verið ákvarðandi þáttur í minnkandi mótstöðu gegn lærleggshálsbroti í eldri einstaklingum. Rannsókn II (þversniðsrannsókn, n=3,762 og af þeim brotnuðu 179, þar af mjaðmarbrot 131) byggir einnig á CT-mælingum á skelbeinsþykkt en í miðjum lærlegg þar sem samband milli vöðva- og beinabreyta og tengsl þeirra við áverka lítil neðri útlimabrot voru rannsökuð. Þessi rannsókn benti einnig í sömu veru um mikilvægi þykktar skelbeins eða öllu fremur þynningar á skelbeini vegna beinniðurbrots innan frá mergholi sem er hugsanlega lykilatriði í þróun á brothættu í neðri útlimum hjá eldra fólki. Í rannsókn III (langsniðsrannsókn, 100 karlar og 300 konur, miðgildi eftirfylgni tíma 5.1 ár), var skelbeinsþykkt í þversniði á miðjum lærleggshálsi metin ásamt beinþéttni skelbeins og frauðbeins út frá sneiðmyndum í tveimur líffærafræðilegum svæðum, efri hluta (supero-lateral) og neðri hluta (infero-medial) miðs lærleggsháls. Hlutfallslegar aldursbreytingar voru þrefalt meiri í efri hluta en neðri hluta á miðjum lærleggshálsi. Eldri konur töpuðu skelbeinsþykkt og skelbeinsbeinþéttni mun hraðar en karlar, sérstaklega í efri hluta lærleggsháls og það endurspeglast ekki nema að litlu leyti í niðurstöðum sem jafngilda DXA. Þar sem brot byrja mögulega í efri hluta lærleggsháls er það hugsanlega aukið beintap í efri hluta lærleggsháls sem veldur því að eldri konur eru í meiri áhættu á að brotna á lærleggshálsi en karlar. Niðurstöðurnar styðja þá tilgátu að beinniðurbrot innan frá mergholi og stækkun á holrúmum innan í skelbeini, sem leiðir til að skelbeinið verður frauðkennt, séu lykilferlar sem leiða til aukinnar brothættu á lærleggshálsi meðal eldra fólks. Meiri skilningur á þeim óþekktu þáttum sem stýra staðbundnu beintapi í lærleggshálsi eldra fólks er mikilvægt rannsóknarefni sérstaklega vegna merkjanlegs muns í svæðisbundnu beintapi milli einstaklinga sem og milli kynja.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983420959
Cites: 175
Cited by:
Related to: 10