Work

Mælingar á hámarkssúrefnisupptöku einstaklings með mænuskaða: aðlaganir og framkvæmd

Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Case Report
Abstract: Eftirfarandi rannsókn var framkvæmd með það að leiðarljósi að auðvelda mælingar á súrefnisupptöku hjá einstaklingum með mænuskaða. Einnig var unnin handhæg handbók til að auðvelda framkvæmd mælinga af þessu tagi og aðlaganir sem þarf að gera á þeim. Þrjár mælingar voru gerðar á sex mánaða tímabili Þátttakandi rannsóknarinnar var 27 ára gömul kona með mænuskaða við T5 og fóru mælingarnar fram á handhjóli. Skráðar voru upplýsingar um hámarkssúrefnisupptöku (VO2max), hjartslátt og öndun (l/min), RER (e. respiratory exchange ratio) og erfiðleikastig mælingar metið, RPE (e. rating of perceived exertion). Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að þátttakandinn hefur lægra VO2max gildi í samanburði við rannsóknir á einstaklingum með styrk í fótum, en þó sambærilegt við einstaklinga með mænuskaða. Niðurstöður leiddu einnig í ljós að mæla má með handhjóli hámarkssúrefnisupptöku hjá einstaklingum með mænuskaða. Vert er að hafa í huga staðsetningu mænuskaðans í hryggsúlu þar sem hann hefur áhrif á líkamlega frammistöðu. Því ofar sem skaðinn er því meiri hömlun og minni líkamleg afköst. Álykta má að þátttakandi hafi lægra VO2max gildi en sjá má í öðrum rannsóknum vegna mænuskaðans. \n \nLykilorð: VO2max, handhjól (e. handcycling), mænuskaði (e. spinal cord injury).
Source: Skemman
Author: Jóna Guðbjörg Árnadóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983579743
Cites: 22
Cited by:
Related to: 10