Work

Mycoplasma genitalium og Chlamydia trachomatis: Algengi á húð- og kynsjúkdómadeild og samanburður á greiningaraðferðum

Year: 2019
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur. Bakteríurnar Mycoplasma genitalium og Chlamydia trachomatis eru á meðal algengustu orsaka kynsjúkdóma í heiminum. Sýkingar af völdum bakteríanna eru oftast einkennalausar hjá konum en um helmingur karla hafa einkenni þvagrásarbólgu. Sýklalyfjaónæmi M. genitalium er vaxandi vandamál. Notast er við kjarnsýrumögnun við greiningu á M. genitalium og C. trachomatis. Viðfangsefni þessarar rannsóknar var fyrsta könnun á algengi M. genitalium hjá skjólstæðingum Göngudeildar Húð- og kynsjúkdóma Landspítala, samanburður á greiningaraðferðum fyrir M. genitalium og C. trachomatis og leit að genum sem skrá fyrir sýklalyfjaónæmi í M. genitalium. Efni og aðferðir. Rannsökuð voru 490 skeiðarstrok frá konum og 493 fyrstubunuþvagsýni frá körlum. Cobas® 4800 CT/NG próf fyrir greiningu á C. trachomatis og N. gonorrhoeae var borið saman við Aptima® 2 combo CT/NG, og S-DiaMGTV™ próf fyrir M. genitalium var borið saman við Aptima® Mycoplasma genitalium. Sýni sem sýndu ólíkar niðurstöður úr tveimur aðferðum voru prófuð með þriðju aðferðinni: Aptima® CT og Aptima® NG specific eða MG Alt TMA-1. Innanhúsaðferð sem byggir á kjarnsýrumögnun var notuð til að leita að genum sem skrá fyrir ónæmi gegn makrólíð- og fluoroquinolonlyfjum og ResistancePlus® MG (550) var að auki notað fyrir leit að genum sem skrá fyrir makrólíðónæmi. \nNiðurstöður. Algengi M. genitalium var 9,4%; hjá körlum 7,7% og konum 11,0%. Algengi C. trachomatis var 14,8%; hjá körlum 13,8% og konum 15,7%. N. gonorrhoeae greindist ekki og ein kona hafði T. vaginalis. Algengi M. genitalium var hærra á meðal kvenna á aldrinum 18-24 ára en eldri kvenna (P=.037) og á meðal karla á aldrinum 23-27 ára en karla í öðrum aldurshópum (P=.03). Karlar með stakar C. trachomatis sýkingar voru líklegri til að hafa einkenni en karlar sem voru ósýktir (P<.0001). Næmi cobas® 4800 CT/NG og Aptima® 2 combo CT/NG var 95,39% (95% CI 90,74-98,13%) og 100% (P=0.023) og sértæki var 99,64% (95% CI 98,96-99,93%) og 100%, í sömu röð. Næmi S-DiaMGTV™ og Aptima® Mycoplasma genitalium var 68,48% (95% CI 57,96-77,77%) og 100% (P<0.0001) og sértæki 99,89% (95% CI 99,38-100%) og 100%, í sömu röð. Af 92 jákvæðum M. genitalium sýnum voru 50% með gen sem skrá fyrir makrólíðónæmi en gen sem skrá fyrir fluoroquinolonónæmi fundust ekki. \nUmræða. Algengi C. trachomatis var 14.8% sem er hærra en sést hefur nýlega á kynsjúkdómamóttökum í Danmörku (11%), Noregi (8%) og Svíþjóð (5%). Algengi M. genitalium var sambærilegt niðurstöðum frá Danmörku (9,0%) og Svíþjóð (9,8%). Algengi makrólíðónæmisgena var svipað og í Danmörku (56,5%) og Noregi (56,4%). Greinilegur munur var á greiningarhæfni S-DiaMGTV™ samanborið við Aptima® Mycoplasma genitalium þar sem Aptima® prófið reyndist vera töluvert næmara eins og aðrar rannsóknir hafa séð. Mögulegt er að S-DiaMGTV™ prófið greini betur M. genitalium sýkta einstaklinga með einkenni en sýkta einkennalausa og þörf er á frekari rannsóknum með S-DiaMGTV™ á Mycoplasma sýkingum með og án einkenna til að staðfesta notagildi prófsins.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Subfield: Microbiology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983580618
Cites: 76
Cited by:
Related to: 10