Neikvætt áreiti vegna auglýsinga á samfélagsmiðlum: Hvert er umfang þess, hvers vegna á það sér stað og hvernig upplifa samfélagsmiðlanotendur það?
Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Samfélagsmiðlar eru í sífellt meiri mæli að verða öflugra markaðsverkfæri til að koma skilaboðum á framfæri sem á sama tíma kallar á skilvirkari markaðsaðgerðir til að ná til fólksins. Áreiti auglýsinga er algengt fyrirbæri og flokkast bæði jákvætt sem og neikvætt. \nRannsókn þessi var bæði af megindlegum og eigindlegum toga en megindlega aðferðin hafði það að markmiði að skoða hvort samfélagsmiðlanotendur séu að upplifa neikvætt áreiti vegna auglýsinga á samfélagsmiðlum ásamt því að kanna hvort ástæður þess megi rekja til of tíðra birtinga þeirra, röngu efni sem miðað er að þeim og/eða of mikils magns auglýsinga á samfélagsneti einstaklinga. Markmið eigindlegu aðferðarinnar var að skilja upplifun samfélagsmiðlanotenda á neikvæðu áreiti. Við megindlegu aðferðina var lögð fram rafræn könnun í formi spurningalista sem byggður var á mælitækjum Celebi og Kim og Sundar og samanstóð af 6 staðhæfingum. Fyrri hluti spurningalistans mældi víddina neikvætt áreiti auglýsinga á samfélagsmiðlum og mældi seinni hluti hans ástæður þess. Könnuninni svöruðu 317 manns og var henni dreift á Facebook. Eigindlega aðferðin fór fram í formi djúpviðtala en viðtalsramminn var byggður á niðurstöðum megindlegu aðferðarinnar og rannsóknum Campbell, Ferraro og Sands, Celebi, Kim og Sundar og Tang, Zhang og Wu. \nNiðurstöður eigindlegu og megindlegu aðferðanna sýna að neikvætt áreiti er til staðar hjá samfélagsmiðlanotendum gagnvart auglýsingum á samfélagsmiðlum og má einna helst rekja til uppáþrengjandi og/eða pirrandi áhrifa þeirra. Niðurstöðurnar sýna einnig að neikvæða áreitið megi helst rekja til of mikils magns auglýsinga á samfélagssvæði einstaklinga en einnig til of tíðra birtinga sem og auglýsinga sem höfða ekki til samfélagsmiðlanotenda. Niðurstöður eigindlegu aðferðarinnar taka undir niðurstöður megindlegu aðferðarinnar ásamt því að bera kennsl á að samfélagsmiðlanotendur eigi það til að fletta hratt niður fréttaveituna sem getur komið niður á athygli þeirra gagnvart auglýsingum. Niðurstöðurnar sýna einnig að samfélagsmiðlanotendur skynja neikvætt áreiti auglýsinga á mismunandi vegu á hverjum samfélagsmiðli fyrir sig og þá eiga þeir það einnig til að hætta að fylgja og/eða líka við fyrirtæki/vörumerki og í sumum tilfellum efast um trúverðugleika auglýsinganna.
Source: Skemman
Author: Arnar Már Friðriksson 1986
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983656065
