Work

Notagildi CEAS í skimun á líðan 6 til 12 ára barna

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: CEAS (Children’s Emotional Adjustment Scale) var þróaður til að meta líðan barna á aldrinum 6 til 12 ára. Listinn inniheldur 47 atriði sem mynda fjóra þætti: skaplyndi, kvíðastjórn, skýringarstíll og framfærni. Áherslan er á að meta frávik frá eðlilegum þroska þar sem atriði listans lýsa hæfileika barna til að umbera og ráða við neikvæð tilfinningaviðbrögð ásamt öryggi þeirra í félagslegum aðstæðum. CEAS var þannig þróaður til að mæla hugsmíðar sem snúa ekki aðeins að frávikum í hegðun heldur einnig heilbrigð tilbrigði af sömu hegðun. Megin markmið rannsóknarinnar var að skoða notagildi CEAS í skimun á líðan barna á aldrinum 6 til 12 ára í almennu úrtaki. Undirmarkmið rannsóknarinnar var að skoða þáttabyggingu og próffræðilega eiginleika CEAS. Þátttakendur voru alls 718 mæður sem svöruðu þremur matslistum, það er CEAS, SDQ og RCADS-P. Þáttagreining studdi fjögurra þátta byggingu CEAS: skaplyndi, kvíðastjórn, skýringarstíll og framfærni. Áreiðanleikastuðlar fyrir þættina voru allir yfir 0,90 og þættirnir höfðu marktæka fylgni við undirkvarða SDQ og RCADS-P sem gefur vísbendingar um samleitniréttmæti listans. Börn sem voru 1,5 staðalfrávikum frá meðaltali á SDQ voru einnig með marktækt lægri stig á CEAS. Jafnframt sýndu niðurstöður að listinn gagnast vel þegar finna á börn með vanda á hagkvæman hátt samanborið við aðra matslista. Þátturinn kvíðastjórn nýtist best þegar finna á börn með innhverfan vanda og almenna kvíðaröskun. Þátturinn skýringarstíll nýtist best þegar finna á börn með þunglyndi, innhverfan- og heildarvanda. Þátturinn skaplyndi nýtist best þegar finna á börn með úthverfan- og heildarvanda. Þátturinn framfærni nýtist síst af þáttunum til að aðgreina á milli barna með og án vanda. Almennt gefa niðurstöður til kynna að CEAS sé gagnleg viðbót við þau mælitæki sem til eru þegar meta á líðan barna á aldrinum 6 til 12 ára.
Source: Skemman
Author: Rebekka Rut Lárusdóttir 1988
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983740172
Cites: 68
Cited by: 1
Related to: 10