Notkun einstofna mótefna gegn RSV veiru hjá börnum á Íslandi. Fjöldi einstaklinga, árangur og kostnaður fyrir íslenskt samfélag
Year: 2023
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: RSV er einn algengasti orsakavaldur sýkinga í neðri öndunarvegi og spítalainnlagnar hjá börnum. Flest þeirra ná sér að fullu en hins vegar getur sýkingin haft alvarlegar afleiðingar þá sérstaklega hjá fyrirburum, börnum með langvinna lungnasjúkdóma eða hjartasjúkdóma. Börnum sem er mjög hætt við alvarlegum fylgikvillum af RSV geta fengið einstofna mótefnameðferðina palivizumab. Markmið rannsóknarinnar voru að meta fjölda barna sem fengu palivizumab á árunum 2013-2023 og heildarkostnað meðferðarinnar. Einnig að kanna ábendingar fyrir meðferðinni og afdrif barnanna sem smituðust þrátt fyrir palivizumab. Efniviður og aðferðir: Frá gagnagrunni Landspítala fengust upplýsingar um öll börn sem fengu palivizumab á árunum 2019-2023. Allar staðfestar RSV sýkingar voru skráðar, skoðaðar voru komur barnanna á bráðamóttöku og/eða gjörgæslu af völdum RSV og afdrif barnanna skráð. Skráð var innlagnarlengd barnanna á barnadeild eða á gjörgæslu og einnig ef barnið þurfti súrefni. Niðurstöður: Alls voru 85 börn sem fengu palivizumab. Af 84 börnum voru átta sem smituðust af RSV og lögðust sjö þeirra inn á spítala en eitt þeirra var inniliggjandi vegna annarra ástæðna. Af þessum átta börnum þurftu fimm þeirra súrefnismeðferð. Kostnaður lyfsins auk inngjafa á göngudeild á árunum 2019-2023 hefur verið metinn á 97.034.320kr. Umræða: Þrátt fyrir að hafa fengið palivizumab var þó hluti barnanna sem smitaðist af RSV eða átta einstaklingar. Ókosturinn við gjöf palivizumab er að lyfið er gefið í fimm skömmtum yfir veturinn ásamt tilheyrandi kostnaði og auknu álagi fyrir börnin og foreldrana. Lyfið nirsevimab kæmi til með að veita börnunum samfelldari vörn en hins vegar á eftir að verðleggja það.
Source: Skemman
Author: Anna Margrét Stefánsdóttir 1998-
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W6983848233
